Courtois frestar endurnýjunarviðræðum við Chelsea Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 11. desember 2017 11:15 Courtois hefur byrjað alla leiki Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu
Thibaut Courtois, markmaður Englandsmeistara Chelsea, gæti verið á leið frá félaginu. Samningur hans við Chelsea rennur út eftir 18 mánuði en hann vill fá nýjan samning, hvort sem hann verður við Chelsea eða eitthvað annað félag, fyrir lok þessa tímabils. Courtois frestaði viðræðum um endurnýjun við Englandsmeistarana nýlega, en hann er að íhuga að snúa aftur til Spánar. Hann var hjá Atletico Madrid á láni árin 2011-14. Þar kynntist hann spænskri kærustu sinni sem hann á með tvö börn. Þau slitu sambandi sínu fyrr á þessu ári og flutti hún aftur til Spánar með börnin. „Þetta er ekki auðvelt. En ég hafði séð það fyrir að hún myndi snúa aftur til Madrid,“ sagði Belginn. „Ég elska börnin mín og þegar ég sakna þeirra velti ég því stundum fyrir mér hvort ég ætti ekki að spila á Spáni á næstu árum. Þess vegna vil ég taka mér tíma í að taka ákvörðun um endurnýjun á samningnum.“ Hann sagði líklegast að endurnýjun við Chelsea verði niðurstaðan þar sem hann sé mjög ánægður hjá enska félaginu, en Evrópu- og Spánarmeistarar Real Madrid hafa verið sagðir hafa áhuga á markverðinum.
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Handbolti „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Fótbolti Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock Handbolti Dagskráin í dag: Tryggir Tindastóll titilinn? Sport Engin Meistaradeild hjá Hákoni Arnari Fótbolti Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Handbolti „Ég ætla að leyfa stelpunum að njóta í kvöld“ Handbolti Willum nýr forseti ÍSÍ með algjörum yfirburðum Sport Fleiri fréttir Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Engin Meistaradeild hjá Hákoni Arnari „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Stórsigur Stólanna í Víkinni Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn „Sjálfum okkur verstar” Glæsimark frá Úlfu tryggði Stjörnunni stigin þrjú Uppgjörið: Þróttur - FH 4-1 | Sjóðheitir Þróttarar völtuðu yfir FH Dortmund náði sætinu á síðustu stundu Uppgjörið: Fram - Þór/KA 1-3 | Tvö mörk frá Söndru Maríu í sigri Þór/KA Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni „Verður stærsti dagur ævi minnar“ „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Íslenskt mark, sjálfsmark og rautt spjald Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Aron á að hjálpa leikmönnum að hugsa ekki um ströndina Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Svona var blaðamannafundur Arnars Aron Einar með en enginn Gylfi Þróttur mætir bikarmeisturunum Sjá meira