Afmælisveisla varð eldi að bráð Stefán Ó. Jónsson skrifar 29. desember 2017 07:15 Húsið er gjörónýtt eftir brunann. NDTV
Talið er að hið minnsta fimmtán séu látnir eftir mikinn bruna í Mumbai í nótt. Eldurinn braust út skömmu eftir miðnætti að staðartíma og ætlað er að hann hafi átt upptök sín í eldhúsi vinsæls veitingastaðar. Þaðan dreifðist eldurinn og að 30 mínútum liðnum var byggingin alelda að sögn þarlendra miðla. Ung kona hafði verið að halda upp á afmæli sitt á veitingastaðnum og voru flestir hinna látnu að fagna tímamótunum með henni. Fjöldamargir slösuðust í brunanum og voru þeir fluttir á sjúkrahús í nágrenninu. Flestir þeirra sem létust höfðu leitað skjóls inni á salerni veitingastaðarins. Þaðan komust þau hvorki lönd né strönd því eldurinn hafði læst sig í brunastigum byggingarinnar. Að sögn læknis sem vísað er til á vef breska ríkisútvarpsins var reykeitrun banamein allra sem létust. Forseti Indlands, Rashtrapati Bhavan, tísti samúðarkveðjum vegna brunans sem má lesa hér að neðan.Disturbing news about the fire in Mumbai. Condolences to the bereaved families and wishing the injured an early recovery. Commend the valiant efforts of fire-fighters and those in rescue ops #PresidentKovind— President of India (@rashtrapatibhvn) December 29, 2017
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira