Gærdagurinn sá kaldasti á árinu Samúel Karl Ólason skrifar 30. desember 2017 10:35 Meðalhiti í byggðum landsins var -8,2 stig í gær. Vísir/Anton
Dagurinn í gær var sá kaldasti á árinu á landinu í heild og mældist kuldinn mestur í Svartárkoti eða -29,0 stig. Þetta kemur fram á bloggsíðu veðurfræðingsins Trausta Jónssonar sem segir frostið á Svartárkoti vera það mesta sem hafi mælst á landinu frá 6. desember 2013 þegar frostið við Mývatn var -31,0 stig.Mesta frost sem vitað er um í desember mældist í Möðrudal þann 9. árið 1917 ,samkvæmt Trausta. Þá mældist frostið -34,5 stig. Hann segir meðalhita í byggðum landsins hafa verið -8,2 stig í gær og sé einungis vitað um 90 kaldari desemberdaga frá og með 1949. Það samsvari rúmlega einn dag á ári að meðaltali en þeir séu ekki nema sjö á þessari öld. „Frostið í Svartárkoti í dag er það mesta sem vitað er um á landinu 29. desember og er því svokallað landsdægurlágmark. Þetta er fyrsta byggðarlágmarksmet sem sett er á árinu, en annað í röð landsdægurmeta á landinu í heild - fjöldinn talsvert undir almennum væntingum. Til samanburðar má geta þess að hámarksdægurmetin eru orðin 12 á árinu (óstaðfestur fjöldi) - fjöldi talsvert ofan væntinga,“ skrifar Trausti. „Mikill fjöldi dægurmeta féll á einstökum stöðvum, t.d. hefur ekki mælst meira frost þann 29. desember á Bergstöðum í Skagafirði og á Sauðanesvita.“
Veður Mest lesið Eins og að vera fangi í eigin líkama Fréttir „Faðir minn ætti að deyja í fangelsi“ Erlent Gert að loka annarri flugbraut Reykjavíkurflugvallar Innlent „Við viljum ekki vera Bandaríkjamenn“ Erlent Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar horfa á Innlent Viðræður í kjaradeilu kennara sigldu í strand Innlent Húsköttur á Seltjarnarnesi með fuglaflensu Innlent Útgöngubann í borginni í nótt Erlent 85 ára og situr við alla daga og tálgar fugla úr íslensku birki Innlent Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg Innlent Fleiri fréttir Þórdís vill ekki fresta landsfundi Viðræður í kjaradeilu kennara sigldu í strand Húsköttur á Seltjarnarnesi með fuglaflensu Árið í fyrra það heitasta frá upphafi mælinga 85 ára og situr við alla daga og tálgar fugla úr íslensku birki Gert að loka annarri flugbraut Reykjavíkurflugvallar Breytingar á Reykjavíkurflugvelli og asahláka Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar horfa á Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg Ekkert verður af kaupunum á Krafti „Ef ég fæ þig ekki fær þig enginn því sver ég eið“ Taka við rekstri Sæborgar á Skagaströnd Endurvekja Á allra vörum til að byggja nýtt Kvennaathvarf Fjölga leikskólaplássum um allt að 300 í Reykjavík Framlengir stuðningskerfi um ár en ræðst í endurskoðun Gular viðvaranir vegna hvassviðris og rigningar Fíkniefnanotkun talin meginorsök banaslyss í Lækjargötu Leikskólarýmum fjölgað og brýnt að skýra áfengislöggjöfina Stækka leikskólann Múlaborg við Ármúla Fimm fluttir á sjúkrahús eftir rútuslysið Hættir sem formaður Hagsmunasamtaka heimilanna Nauðsynlegt að slá ekki kynslóðaskiptum í Sjálfstæðisflokknum á frest Framsóknarmenn í Reykjavík vilja flýta flokksþingi Laxalús í sjókvíum smitist greiðlega í villta laxa Náðu að loka á mann sem sveiflaði hníf inn um hurð Útsýnið úr útsýnisíbúðinni verður að engu Framkvæmdir við stóran áfanga Borgarlínu á næsta leiti „Kæmi slíkt upp í Reykjavík yrði gengið fljótt til verks“ Hótel Hestheimar í bók National Georgraphic Grunuð um að setja milljónir af opinberu fé inn á veðmálasíður Sjá meira