Fanney Birna ráðin aðstoðarritstjóri Kjarnans Daníel Freyr Birkisson skrifar 8. janúar 2018 13:21 Fanney Birna er nýr aðstoðarritstjóri Kjarnans.
Fanney Birna Jónsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarritstjóri Kjarnans og hefur hún störf nú þegar. Þá mun hún einnig koma inn í eigendahóp fjölmiðilsins en frá þessu er greint á vef Kjarnans. Sinnti Fanney starfi aðstoðarritstjóra Fréttablaðsins á sínum tíma en undanfarið ár hefur hún stýrt pólitíska umræðuþættinum Silfrinu á RÚV ásamt Agli Helgasyni. Segir í tilkynningunni að hún muni áfram stýra þættinum með Agli. Munu þau því bæði sinna störfum fyrir tvo fjölmiðla, en Egill heldur úti pistlaskrifum á Eyjunni undir merkjum „Silfur Egils“. „Ég er mjög spennt fyrir því að takast á við þetta verkefni og þróa Kjarnann áfram með því öfluga fólki sem þar er fyrir. Íslenskt samfélag þarfnast nauðsynlega sterkra og óháðra fjölmiðla. Á tímum þar sem blaðamönnum fer fækkandi og almannatenglum hratt fjölgandi, ásamt því að valdamestu menn samfélagsins veigra sér ekki við því að vega að heiðri og þannig trausti fjölmiðla, er beittur, gagnrýninn og aðhaldssamur fréttaflutningur ómetanlegur,“ segir Fanney í tilkynningunni. „Ég fagna tækifærinu til þess að fá að leggja mitt lóð á vogarskálarnar í þessum efnum hjá Kjarnanum, sem hefur sýnt að miðillinn er til þess gerður að veita bæði stjórnvöldum og stórfyrirtækjum það aðhald sem er nauðsynlegt í okkar lýðræðissamfélagi.“ Þá hefur Kjarninn einnig fengið til liðs við sig Báru Huld Beck, blaðamann, og Gretti Gautason sem mun sjá um verkefna- og sölustjórn.
Ráðningar Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira