Nýársspá Siggu Kling - Vatnsberinn: Töfrandi elskhugi 5. janúar 2018 09:00
Elsku Vatnsberinn minn, þú ert sú manneskja sem gleður ávallt hjarta mitt og mig langar svo sannarlega til að knúsa þig. En þú ert á tímabili þar sem þú þarft að taka stórar ákvarðanir og alls ekki víkja frá því sem þú ætlar þér. Þú ert að byggja svo sterkar undirstöður fyrir framtíðina, en þér mun finnast það dálítið erfitt. Það er mikið uppgjör í gangi þessa mánuðina, þú elskar að spá í sálarlíf annarra og líka sjálfs þín, í þér býr svo mikill hippi. Þú elskar líka kerti og finnst bara gaman að vera Íslendingur. Það er mjög sjaldgæft fyrir þig að vilja búa á Kanarí eða Tenerife því þú hefur sama kraft og Snæfellsjökull og magnar upp í kringum þig ást, á tunglinu, sjónum og landinu. Það er ekki hægt að segja að þú sért mannglöggur svo passaðu þig á því að leggja ekki allt í hendurnar á einhverjum sem getur svikið þig. Mundu að skrifa í smáa letrið í öllum samningum það sem þú vilt. Þú hefur svo blíða útgeislun og ert þar af leiðandi töfrandi elskhugi. Það er mikilvægt fyrir þig að breyta heimilinu þínu og setja nýja orku í það allavega einu sinni á ári. Nýja liti og nýjar bækur því þú ert mesta bókamanneskja sem ég þekki. Það er líka svo athyglisvert hvað lykt hefur mikil áhrif á þig og sérstaklega þessa vetrarmánuði. Blóm og músík munu skreyta heimili þitt og febrúar, mars, apríl og maí gefa þér hamingju, jafnvel frjósemi. Innifalin í þessu er líka ástin og ég sé að það er sérstaklega ástin til þín sem mun færa þér farsælan endi í uppgjörinu sem þú ert í núna. Það elskar þig enginn ef þú gerir það ekki sjálfur. Sumarið verður góður tími til að faðma að sér fegurð, lífið og fjölskyldu. Haustið og veturinn gefa þér svo veraldleg gæði og peninga en þú skalt ekki láta það skipta þig of miklu. Þar sem þú ert óvenju gjafmild persóna og setur mikið í gjafirnar áttu inni fullt af óvæntum veislum – ég ætla þó ekki að útskýra nákvæmlega hvað ég er að meina. Þú ert mikill nautnaseggur en þetta ár gefur þér mikinn sjálfsaga og skemmtilegra líferni. Þá er ég ekki að meina að þú farir í eitthvert átak eða þannig því að þú munt aldrei nenna því til lengdar. Þú ferð frekar að elska svo margt sem lætur þér líða betur og þegar þú finnur kraft þessarar vellíðunar þá geislarðu af náttúrulegri útgeislun, heillar alla upp úr skónum og færð þínu framgengt með einlægni. En þú skalt alltaf muna að þú þarft alltaf að hafa samninga og allt niðurskrifað. Þú ert daðurkóngur eða -drottning því þér finnst það svo eðlilegt og fallegt að veita öðrum athygli. Og þar sem við erum ein heild, allur heimurinn, mun það tengja þig til útlanda og þú átt eftir að verða mjög hissa á því hverjum þú munt hanga með árið 2018. Þú verður að ákveða hversu mikils þú metur frelsi þitt því þú getur ekki verið alveg frjáls en átt samt ástkonu eða ástmann. Ástin er annaðhvort eða, maður elskar eða maður elskar ekki. Ég verð að segja að á þessu ári er það þitt val, svo ég gef þér engin skilaboð um hvað þú átt eða átt ekki að gera.Frægir Vatnsberar: Pacas hans Begga, Geir Sveinsson handknattleiksþjálfari, Halla himintungl, Clark Gable leikari, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir borgarfulltrúi, Yoko Ono, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Katrín Jakobsdóttir þingkona, Hilmir Snær Guðnason leikari, Rikka sjónvarpskona, María Ólafsdóttir Júróvisjónstjarna, Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kastljóss, Gunna Dís útvarpskona, Höddi Magg, Andrea Róberts mannauður, Hilmar Hafsteinsson ofurfasteignasali, Rut Roberts flugfreyja hjá Icelandair, Ragnheidur Guðfinna sálfræðingur. Setningin til þín er: Þú stjórnar ástinni – Somebody to Love (Queen).
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Sjá meira