Segja mögulegt að enginn sjúkrabíll verði á Raufarhöfn Samúel Karl Ólason skrifar 18. janúar 2018 10:34 Frá Raufarhöfn. Vísir/Pjetur
Formaður Landssambands Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, hefur áhyggjur af stöðu sjúkraflutninga á Raufarhöfn og fyrirhuguðum breytingum á utanspítalaþjónustu þar. Eini starfandi sjúkraflutningamaður á svæðinu lætur nú af störfum vegna aldurs og segir sambandið að hugmyndir séu uppi um að leggja starfið niður og taka sjúkrabílinn af staðnum. Stefán Pétursson, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, segir að um mikið áhyggjuefni sé að ræða. Hann vill sjá sjúkrabíl og launaða sjúkraflutningamenn á svæðinu áfram, sem mikilvæga hlekki utanspítalaþjónustunnar á norðausturhorninu. „Við lítum svo á að allir landsmenn eigi rétt á sömu heilbrigðisþjónustu óháð búsetu. Það er jú bundið í lög um heilbrigðisþjónustu. Minnkandi þjónusta inn á heilbrigðisstofnunum úti á landi kallar á bætta utanspítalaþjónustu,“ segir Stefán í tilkynningu. Enn fremur segir hann það mikla afturför ef heimamenn fyrir austan þurfi alfarið að treysta á viðbrögð vettvangsliða, þegar slys eða sjúkdóma ber að höndum. Hann vill sjá áfram starfandi sjúkraflutningamanna á Raufarhöfn, sem samhliða starfinu geti byggt upp nauðsynlegan hóp vettvangsliða sér til stuðnings. Vettvangsliðar séu kærkomin viðbót í utanspítalaþjónustu en komi aldrei í staðinn fyrir sjúkraflutningamenn. Vettvangsliðakerfi hafi reynst vel bæði hérlendis og erlendis sem fyrsti hlekkur í keðju bráðaþjónustu utan spítala og til stuðnings sjúkraflutninga. Það sem veki áhyggjur séu áform um að skerða ákveðið viðbragð og þjónustustig sem útlit er fyrir að eigi að gera á Raufarhöfn. Þá segir Stefán að nýjar tölur um útköll vegna slysa á vegum landsins staðfesti enn frekar þörfina fyrir að þekking og þjálfun sé byggð upp og aukin í heimabyggð alls staðar á landinu. Efla verði sjúkraflutninga og þétta verði net vettvangsliða. Vel megi sjá fyrir sér að slökkvilið á landsbyggðinni taki að sér mikilvægt hlutverk vettvangsliða og gæti það aukið öryggi og eflt slökkviliðin um leið.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Fleiri fréttir Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Sjá meira