Rignir, bætir í vind og kólnar Stefán Ó. Jónsson skrifar 12. janúar 2018 06:41 Það er útlit fyrir mikla rigningu á Suðausturlandi og Austfjörðum í allan dag. Vísir/Stefán
Það mun blása úr suðri í dag. Veðurstofan gerir ráð fyrir hvassviðri eða stormi austan megin á landinu, en að það verði strekkingur eða allhvasst vestantil. Þá er útlit fyrir mikla rigningu á Suðausturlandi og Austfjörðum í allan dag og eru líkur á vatnsflóðum á þeim slóðum. Þarna styttir ekki upp fyrr en seint í kvöld eða í nótt. Gul viðvörun er í gildi fyrir Austurland að Glettingi en appelsínugular viðvaranir á Austfjörðum og Suðausturlandi. Eitthvað mun verða vart við vætu í öðrum landshlutum einnig. „Sunnanáttin hefur fært hlýtt loft yfir landið og til dæmis hefur í nótt í hnjúkaþey mælst rúmlega 10 stiga hiti á Akureyri, Seyðisfirði og í Vopnafirði,“ segir í færslu veðurfræðings. Hitinn verður á bilinu 4 til 9 stig. Einnig má gera ráð fyrir suðvestan strekkingi eða allhvössum vind á morgun og því fylgi él eða skúrir. Það léttir svo til um landið norðaustanvert. Hitinn þokast niðurávið og verður ekki mikið yfir frostmarki. Úrkoman verður orðin samfelldari annað kvöld, það bætir í vindinn og fer að kólna meira. Aðfaranótt sunnudags og á sunnudaginn mun því snjóa nokkuð víða um land samfara stífum vindi. Að sögn veðurfræðings Veðurstofunnar gera langtímaspár síðan ráð fyrir að norðanátt ráði ríkjum í næstu viku með frosti á öllu landinu og ofankomu norðanlands.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ laugardag:Suðvestan og sunnan 10-18 m/s og él eða skúrir, en léttskýjað á norðaustanverðu landinu. Samfelldari rigning, slydda eða snjókoma á Suður- og Vesturlandi undir kvöld. Hiti 0 til 4 stig.Á sunnudag:Sunnan og suðvestan 15-23 m/s aðfaranótt sunnudags og víða slydda eða snjókoma. Suðvestan 13-20 á sunnudaginn með dimmum éljum, en léttir til norðaustan- og austanlands eftir hádegi. Kólnandi veður, frost 1 til 7 stig um kvöldið. Á mánudag:Norðlæg átt og víða él, en úrkomulítið síðdegis á sunnanverðu landinu. Frost 1 til 10 stig. Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag:Norðlæg átt og snjókoma eða él norðantil á landinu, annars úrkomulítið. Frost 2 til 10 stig.
Veður Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Erlent Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt Erlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Fleiri fréttir Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Sjá meira