„Varúlfurinn“ játar á sig tugi morða Stefán Ó. Jónsson skrifar 11. janúar 2018 07:22 Mikhail Popkov gæti verið einn illræmdasti fjöldamorðingi sögurnar.
Rússsneskur fyrrverandi lögreglumaður, sem sakfelldur var fyrir að hafa myrt tuttugu og tvær konur á margra ára tímabili, hefur nú játað á sig fimmtíu og níu morð til viðbótar. Mikhail Popkov, sem er fimmtíu og þriggja ára gamall, er nú fyrir rétti vegna hinna nýju yfirlýsinga hans. Ef hann verður fundinn sekur um öll morðin sem hann hefur játað á sig, áttatíu og eitt að tölu, gerir það hann að einum illræmdasta fjöldamorðingja sögunnar. Hann var handtekinn árið 2012 þegar lífsýni tengdu hann við vettvang eins morðsins. Popkov framdi morðin í grennd við heimaborg sína, Angarsk í Síberíu, á árunum 1992 til 2010. Fram til ársins 1998 starfaði Popkov sem lögreglumaður en ekkert lát varð á morðunum þó hann hafi lagt lögreglukylfuna á hilluna. Fórnarlömb hans voru allt konur á aldrinum sextán til fjörutíu ára, fyrir utan einn karlmann sem var samstarfsmaður hans í lögreglunni. Popkov er sagður hafa myrt flest fórnarlamba sinna í aftursæti bifreiða, stundum lögreglubílsins sem hann ók heim til sín eftir langar kvöldvaktir, eftir að hafa boðið þeim far. Popkov gengur alla jafna undir viðurnefninu „Varúlfurinn“ eða „Brjálæðingurinn frá Angarsk“ í heimalandi sínu.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira