Yfir 130 látnir í árásum á aðeins 9 dögum Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 29. janúar 2018 20:00 Minnst 103 létust í árás í borginni á laugardaginn. Vísir/AFP
Yfir 130 manns hafa týnt lífi í mannskæðum árásum í Kabúl, höfuðborg Afganistan, á rétt rúmri viku. Mikill órói hefur verið í landinu síðustu vikur þar sem vígamenn íslamska ríkisins og talíbana skiptast á að láta til skarar skríða. Ellefu hermenn féllu og minnst sextán til viðbótar eru særðir eftir árás sem gerð var á herstöð í grennd við herskólann í Kabúl, höfuðborg Afganistan, í nótt. Hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við íslamskt ríki hafa lýst yfir ábyrgð á ódæðinu. Þá létust rúmlega hundrað manns og á þriðja hundrað eru særðir eftir að sjúkrabíll var sprengdur í loft upp á laugardaginn. Talíbanar lýstu ábyrgð á þeirri árás en hún er ein sú blóðugasta í landinu í marga mánuði.Stjórnmálamenn víða um heim hafa fordæmt árásirnar, þeirra á meðal Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra, sem sagði á Twitter um helgina að árásin á laugardag bæri merki um heigulshátt. Talskona kínverska utanríkisráðuneytisins fordæmdi einnig árásirnar í dag en sjúkrabílasprengjan, sem varð minnst 103 manns að bana, sprakk aðeins 600 metrum frá sendiráði Kína í Afghanistan. Þá réðust vígamenn talíbana á lúxushótel í Kabúl fyrir rúmri viku síðan þar sem 22 féllu. Þannig hafa yfir 130 manns týnt lífi í mannskæðum árásum í höfuðborginni á aðeins níu dögum. Vel á þriðja hundrað til viðbótar eru særðir eftir árásirnar. Margir íbúar borgarinnar lýsa yfir óánægju sinni í garð yfirvalda í kjölfar árásanna. Að sögn varnarmálaráðherra Afganistans hafa öryggissveitir undir stjórn hersins ráðist í fjölda aðgerða gegn hryðjuverkamönnum undanfarnar vikur þar sem hátt í tvö þúsund vígamenn úr röðum talíbana hafa verið felldir og tæplega 40 liðsmenn íslamska ríkisins.
Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira