Dortmund samþykkir 55,4 milljóna punda tilboð Arsenal í Aubameyang Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. janúar 2018 11:15 Pierre-Emerick Aubameyang. Vísir/Getty
Telegraph hefur fengið það staðfest að Arsenal sé búið að ná samkomulagi við Borussia Dortmund um kaupin á Pierre-Emerick Aubameyang. Aubameyang verður þar með dýrasti og hæstlaunaðasti leikmaður Arsenal frá upphafi. Arsenal borgar þýska liðinu 55,4 milljónir punda fyrir Gabonmanninn og mun borga honum um 180 þúsund í vikulaun. Arsenal kaupir hann sem sagt á 7,9 milljarða og hann fær tæpar 26 milljónir í laun á viku.Arsenal agree club record £55.4m fee for Pierre-Emerick Aubameyang https://t.co/x9LawYRxpF — Telegraph Football (@TeleFootball) January 29, 2018 Nýr samningur Arsenal og Pierre-Emerick Aubameyang mun ná til ársins 2021 en framherjinn verður þá orðinn 32 ára. Viðræður Arsenal og Borussia Dortmund hafa staðið yfir í viku og þýska félagið hafði þegar hafnað 44 milljón punda tilboði. Það fylgir líka frétt Telegraph að það komi til greina að Dortmund kaupi síðan Olivier Giroud af Arsenal eða fái franska framherjann á láni. Chelsea hefur einnig áhuga á Giroud. Hjá Arsenal hittir Pierre-Emerick Aubameyang fyrir Henrikh Mkhitaryan en þeir léku báðir saman hjá Borussia Dortmund. Aubameyang hefur skorað 13 mörk í 16 deildarleikjum með Dortmund á leiktíðinni og alls 98 mörk í 144 deildarleikjum undanfarin fjögur og hálft tímabil.
Enski boltinn Þýski boltinn Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Fleiri fréttir Bournemouth - Everton | Norðanliðið mætir suður Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira