Félagarnir í Latabæ koma sér fyrir í Hveragerði Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 20. janúar 2018 21:16 Leikfélag Hveragerðis er á meðal bestu áhugaleikfélaga landsins. Vísir/Magnús Hlynur Hreiðarsson
Glanni glæpur, íþróttaálfurinn, Solla stirða, Maggi mjói og Halla hrekkjusvín úr Latabæ hafa komið sér vel fyrir í Hveragerði því þau verða Þar næstu vikurnar. Ástæðan er sú að Leikfélag Hveragerðis frumsýndi verkið í dag. Tvíburasystur leika íþróttaálfinn og Magga mjóa. Leikfélag Hveragerðis er eitt af allra öflugustu áhugaleikfélögum landsins. Félagið sem fagnaði 70 ára afmæli sínu á síðasta ári hefur verið mjög duglegt að setja upp barnaleikrit. Nú er það Glanni glæpur í Latabæ. „Það er viss áskorun að setja upp svona verk sem allir þekkja. Það er bara gaman að sjá þennan stórkostlega hóp koma því til skila,“ segir Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson sem leikstýrir verkinu.Hrefna Ósk fer með hlutverk íþróttaálfsins og Elín Hrönn leikur Magga mjóa.Vísir/Magnús Hlynur HreiðarssonTvíburasysturnar Hrefna Ósk og Elín Hrönn eru í stórum hlutverkum því þær leika íþróttaálfinn og Magga mjóa. Þær segjast finna sig vel á sviðinu. Var erfitt að æfa fyrir þetta leikrit?„Mjög svipað og flest önnur, þetta náttúrulega krefst mikillar skuldbindingar,“ segir Elín Hrönn Jónsdóttir en Hrefna Ósk, systir hennar sem fer með hlutverk íþróttaálfsins, skýtur inn í um hæl: „og hreyfingar!.“ Elín segir þá með góðlátlegum tóni að Hrefna hefði aðeins þurft að æfa sig.En af hverju ætti fólki að leggja leið sína í Hveragerði til að sjá leikritið ?„Þetta er ótrúlega flott sýning og klassísk saga. Það þekkja allir Latabæ og það er góður boðskapur. Ég er komin til að lífga Magga mjóa við aftur því honum var hent út úr þáttunum. Ég er komin til að lífga hann við,“ segja systurnar.
Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ Sjá meira