22 ár síðan að Magic hætti við að hætta og mætti aftur í NBA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. janúar 2018 22:30 Magic Johnson býr sig undir að koma inná NBA-völlinn á ný 30. janúar 1996. Vísir/Getty
30. janúar er stór dagur á körfuboltaferli Bandaríkjamannsins Magic Johnson því fyrir 22 árum snéri aftur í NBA-deildina eftir rúmlega fjögurra ára fjarveru. Magic Johnson hafði lagt skóna á hilluna eftir að hann greindist með HIV-veiruna haustið 1991 en lék bæði í Stjörnuleiknum 1992 sem og á Ólympíuleikunum í barcelona 1992. Þegar Magic snéri aftur til Los Angeles Lakers 30. janúar 1996 hafði hann ekki spilað með liðinu síðan í júní 1991. Magic á 37 ára aldursári þegar hann snéri aftur í Lakers-liðið í janúarmánuði 1996. Hann hafði stýrt liðinu í sextán leikjum tímabilið 1993-94 en kláraði nú 1995-96 tímabilið með Lakers. Fyrsti leikurinn var á heimavelli á móti Golden State Warriors og vannst með tíu stigum. Magic var með 19 stig, 10 stoðsendingar og 8 fráköst á 27 mínútun.On this date 22 years ago, Magic Johnson returned to the Lakeshow, ending a 4-year retirement. pic.twitter.com/WbKKZpNis5 — ESPN (@espn) January 30, 2018 Leikirnir með Los Angeles Lakers fram á vor 1996 voru síðustu körfuboltaleikir Magic Johnson á ferlinum. Í 32 deildarleikjum með Lakers var hann með 14,6 stig, 5,7 fráköst og 6,9 stoðsendingar að meðaltali í leik. Síðustu fjórir leikirnir voru hinsvegar í úrslitakeppninni þar sem Los Angeles Lakers datt út 1-3 á moti Houston Rockets. Magic var með 15,3 stig, 8,5 fráköst og 6,5 stoðsendingar að meðaltali í leik. Í lokaleiknum 2. maí 1996 skoraði hann átta stig, tók fimm fráköst og gaf fimm stoðsendingar en Lakers tapaði með 8 stigum og var komið í sumarfrí.
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn „Ég verð að spila“ Enski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira