Erlent

Sagði að minnisblað Demókrata verið birt „bráðum“ en hætti við

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. Vísir/AFP

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að opinbera ekki minnisblað Demókrata í leyniþjónustunefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Vísaði forsetinn til þjóðaröryggis en minnisblaðið byggir á leynilegum gögnum. Trump sagði þó fyrr í dag að minnisblaðið yrði birt „bráðum“. Talsmaður Hvíta hússins sagði þó skömmu seinna að Trump væri að meta stöðuna og myndi ákveða sig innan skamms.



Lögmaður Hvíta hússins, Don McGahn sagði að minnisblaðið innihéldi of mikið af leynilegum upplýsingum og að meðlimir nefndarinnar hefðu verið beðnir um að breyta því með tilliti til ábendinga Dómsmálaráðuneytisins. Hann sagði Trump vera tilbúinn til að svipta leyndinni af minnisblaðinu ef breytingar yrðu gerðar.

Umræddu minnisblaði er ætlað að vera andsvar við minnisblaði sem Repúblikaninn Devin Nunes skrifaði og opinberað var í síðustu viku. Í því minnisblaði var því haldið fram að starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna, FBI, og Dómsmálaráðuneytisins hefðu beitt óviðeigandi aðferðum til þess að fá heimildir til að hlera fyrrverandi starfsmann framboðs Trump, Carter Page, og markmið þeirra hefði verið að grafa undan Trump.



Stuðningsmenn forsetans hafa notað minnisblað Nunes til þess að gagnrýna Rússarannsókn Robert Mueller og jafnvel sagt að hún eigi ekki rétt á sér. Þó fram hafi komið í minnisblaðinu að upphaf rannsóknarinnar megi reka til þess að George Papadopoulos, sem starfaði fyrir framboð Trump og varð í október fyrsti einstaklingurinn til þess að játa sök í tengslum við sérstakri rannsókn á meintum tengslum framboðs Trump við Rússland, hafi sagt við ástralskan embættismann í London að Rússar byggju yfir upplýsingum um Hillary Clinton áður en það var opinbert.



Nunes hélt því svo fram í útvarpsviðtali á miðvikudaginn að Demókratar væru að reyna að fela þá staðreynd að Hillary Clinton hefði starfað með Rússum til þess að öðlast neikvæðar upplýsingar um Donald Trump og koma þeim til FBI og þannig hefja Rússarannsóknina. Sú staðhæfing á hins vegar ekki við rök að styðjast.



Forsvarsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna, FBI, Dómsmálaráðuneytisins mótmæltu birtingu minnisblaðs Nunes og það gerðu Demókratar sömuleiðis. Þeir sögðu minnisblaðið draga upp ákaflega misvísandi mynd af hvernig FBI og dómsmálaráðuneytið hafa hagað störfum sínum í tengslum við rannsóknina. Þannig sérvelji Nunes gögn til að styðja kenningu sína um hlutdrægni FBI en líti fram hjá öðrum gögnum sem rannsóknin hefur byggt á.



Repúblikanar í leyniþjónustunefndinni höfnuðu hins vegar að birta opinberlega minnisblað minnihluta demókrata í nefndinni sem lýst er sem andsvari við skjal Nunes á sama tíma. Repúblikanar í nefndinni samþykktu það svo á þriðjudaginn og sendu skjalið til Trump sem hefur fimm daga frá þriðjudeginum til að taka ákvörðun.



Fréttin hefur verið uppfærð með tilliti til tilkynningar Trump. Upprunalega fjallaði hún um að Hann sagði í dag að minnisblaðið yrði birt „bráðum“.


Tengdar fréttir

Vara Trump við að feta í fótspor Nixon

Þingmenn demókrata í báðum deildum Bandaríkjaþings hafa varað Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, við að reka háttsetta embættismenn sem sjá um Rússarannsóknina svokölluðu

Alríkislögreglan grípur til varna

Ríkisstjórn Donald Trump og bandamenn hans á þingi standa nú í opinberum slag við Alríkislögreglu Bandaríkjanna og Dómsmálaráðuneytið.

Árásum íhaldsmanna á FBI fjölgar

Útlit er fyrir að Repúblikanar séu með markvissum hætti að reyna að grafa undan trúverðugleika FBI og Mueller. Í það minnsta meðal stuðningsmanna flokksins.

Minnisblað Demókrata sent til Trump

Þingnefnd fulltrúadeildarinnar um njósnamál hefur ákveðið að opinbera minnisblað Demókrata, sem er svar þeirra við umdeildu minnisblaði Devin Nunes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×