Vita ekki hvað varð um minnst 800 milljónir dala Samúel Karl Ólason skrifar 5. febrúar 2018 18:32 Endurskoðunin er hafa vakið upp spurningar um það hvort að Varnarmálaráðuneytið geti í raun haldið utan um þá 700 milljarða tala sem varið er í hernaðarmál á ári. Vísir/Getty
Ein af stærstu undirstofnunum Varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna getur ekki gert grein fyrir því hvernig rúmlega átta hundruð milljónum dala var varið. Þetta kemur fram í innri endurskoðun Defense Logistics Agency, DLA, sem blaðamenn Politico hafa komið höndum yfir. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mun á næstunni leggja fram tillögu um að auka fjárútlát til varnarmála. 800 milljónir dala samsvara um 80 milljörðum króna.Samkvæmt frétt Politico segir í greinagerð endurskoðendafyrirtækisins Ernst & Young að forsvarsmenn DLA hafi haldið svo illa um kostnað stofnunarinnar að það sé engin leið að rekja fjárútlát hennar og að líklegast séu 800 milljónirnar mikið vanmat. DLA, sem er í raun nokkurs konar birgi herafla Bandaríkjanna, fær um 40 milljarða dala á ári.Þetta er sagt vekja spurningar um það hvort að Varnarmálaráðuneytið geti í raun haldið utan um þá 700 milljarða dala sem varið er í hernaðarmál á ári og þá milljarða sem Trump mun leggja til að bætt verði við. Innri endurskoðun hefur aldrei verið framkvæmd í ráðuneytinu þrátt fyrir að þingið hafi kallað eftir því. Þingmenn hafa nú áhyggjur af því að endurskoðun gæti reynst ómöguleg vegna ástands bókhalds DLA. Forsvarsmenn stofnunarinnar segja þó að tekið verði á þessum málum en ljóst er að mikið verk er fyrir höndum starfsmanna DLA. Í tilkynningu til Politco segir að DLA sé fyrsta stóra stofnun Varnarmálaráðuneytisins sem fer í gegnum endurskoðun og að niðurstöðurnar hafi í raun ekki komið á óvart. Endurskoðunin sneri að tímabilinu 1. október 2015 til 30. september 2016.
Bandaríkin Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Sjá meira