Pence opinn fyrir viðræðum við Norður-Kóreu Samúel Karl Ólason skrifar 12. febrúar 2018 10:37 Mike Pence og Moon Jae-in á ólympíuleikunum í PyeongChang. Vísir/AFP
Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, segir Bandaríkin sjá viðræður við Norður-Kóreu um kjarnorkuvopnaáætlun þeirra í jákvæðara ljósi en áður. Yfirvöld Suður-Kóreu undirbúa nú að halda opinberar viðræður við nágranna sína og samkvæmt Pence hafa Bandaríkin samþykkt hvernig útvíkka mætti þær viðræður með mögulegri aðkomu Bandaríkjanna og beinum viðræðum þeirra við Norður-Kóreu. Spenna á Kóreuskaganum hefur verið mjög mikil að undanförnu, vegna kjarnorkuvopnaáætlun Norður-Kóreu og tilraunum þeirra með kjarnorkusprengjur og eldflaugar til að bera slík vopn, meðal annars til Bandaríkjanna. Þá hafa Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu skipst á móðgunum. Pence sagði í samtali við Washington Post að ekki yrði dregið úr viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum fyrr en ríkisstjórn Kim Jong Un samþykkir að láta af kjarnorkuvopnaáætlun sinni og gefa frá sér öll kjarnorkuvopn.Hingað til hefur ríkisstjórn Bandaríkjanna sagt að ekki sé vilji til að ræða beint við Norður-Kóreu fyrr en þeir taki skref í átt að kjarnorkuafvopnun. Eftir að hafa rætt við Moon Jae-in, forseta Suður-Kóreu, segir Pence að þvinganir muni ekki verða felldar niður og verði þær jafnvel auknar. Hins vegar séu Bandaríkin tilbúin til viðræðna. Á fundi Pence og Moon ítrekaði varaforsetinn að alþjóðasamfélagið mætti ekki endurtaka sömu mistök og áður og létta á þrýstingi á Norður-Kóreu í staðinn fyrir viðræður. Moon samþykkti það og sagði að Norður-Kórea myndi ekkert græða á viðræðunum einum og sér. Aðspurður um hvaða skref Norður-Kórea þyrfti að taka til að þvinganir yrðu felldar niður sagðist Pence í rauninni ekki vita það. „Til þess eru viðræður.“
Norður-Kórea Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Sjá meira