Messan: „Heilalaust“ hjá Stóra Sam að taka Gylfa af velli í einum hans besta leik fyrir Everton Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2018 12:30
Enska úrvalsdeildin bauð upp á Íslendingaslag um síðustu helgi og strákarnir í Messunni fylgdust vel með og höfðu sínar skoðanir á frammistöðu íslensku landsliðsmannanna tveggja. Frammistaða Gylfa Þórs Sigurðssonar í leiknum kallaði fram heitar skoðanir hjá Messumönnum. „Við erum að sjá leik í enska boltanum í hádeginu á laugardegi þar sem við eigum fulltrúa sitt hvoru megin og þeir taka báðir öll föst leikatriði hjá sínum liðum, “ sagði Ríkharð Guðnason þegar hann hóf umfjöllunina um Íslendingaslag Burnley og Everton á Turf Moor. „Þeir voru báðir frábærir í leiknum fannst mér,“ sagði Hjövar Hafliðason og Reynir Leósson tók undir það. „Mér fannst þetta vera frábær leikur hjá Gylfa inn á miðsvæðinu. Hann var að vinna bolta og var langhættulegasti leikmaðurinn þeirra í sóknarleiknum,“ sagði Reynir Leósson. „Sam Allardyce tókst að taka okkar mann af velli sem var algjörlega heilalaust. Hann tekur líka Tosun af velli sem var búinn að vera hættulegur líka,“ sagði Reynir. „Hvað ætli fari í gegnum huga Sam Allardyce þarna? Erum við ekki sammála um að þetta hafi verið einn besti leikur Gylfa á leiktíðinni,“ spyr Ríkharð Guðnason. „Þarna fékk hann að spila inn á miðjunni og var algjörlega frábær í þessum leik. Það var líka baulað all hressilega þegar hann tók Gylfa af velli. Stuðningsmenn Everton voru algjörlega brjálaðir,“ sagði Reynir. Það má sjá umfjöllun Messunnar um Gylfa sem og hans helstu tilþrif út Burnley-leiknum í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Mest lesið Danir láta Gísla heyra það eftir gagnrýni: „Haltu kjafti Ísland“ Handbolti HSÍ ósátt við EHF: Skikkaðir á viðburð morguninn eftir langa nótt Handbolti Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“ Handbolti Leikmaður Dana fór á sjúkrahús eftir leikinn í kvöld Handbolti Alfreð enn kóngurinn en „jarðaður út og suður“ Handbolti EM í dag: Pirruðu danska blaðamenn og truflun í boði skattgreiðenda Handbolti Utan vallar: Af hverju töpuðu hetjurnar okkar gegn Dönum? Sport Segir Dag hafa beðist afsökunar Handbolti Pytlick: „Ísland átti meira skilið í kvöld“ Handbolti „Ég nenni ekki að eyða orku í þetta EHF lið“ Handbolti Fleiri fréttir Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Chelsea - West Ham | Bæði lið í stuði Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Sjá meira