Messan: Þetta var bara vandræðalegt hjá Chelsea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2018 11:00
Messan tók fyrir leik Manchester City og Chelsea og þar var bæði farið yfir sigurmark Manchester City sem og taktík Chelsea liðsins í leiknum. Hjörvar Hafliðason kenndi Thibaut Courtois, markverði Chelsea, meðal annars um markið sem Manchester City skoraði og tók þá fyrir fótavinnu og staðsetningu Courtois og bar það saman við þá hjá David de Gea, markverði Manchester United. Það er óhætt að segja að þar hafi Courtois ekki komið vel út. „Af hverju stendur Courtois fyrir utan markið og af hverju þarf hann að standa svona mikið á nærstönginni? Það er þessi klaufalega fótavinna yfir á fjærstöngina sem veldur því að boltinn fer inn því þetta er ekkert skot auðvitað hjá Bernardo Silva,“ sagði Hjövar Hafliðason og bætti við: „Það hefði verið svo auðvelt fyrir alvöru markmann að koma í veg fyrir þetta,“ sagði Hjörvar. „Ætla þeir ekki að reyna að jafna eða er eitthvað plan. Þeir héldu bara áfram að liggja,“ sagði Ríkharð Guðnason um viðbrögð Chelsea eftir að Manchester City komst. Reynir Leósson hafði líka skoðun á leikstíl Chelsea-liðsins og þá sérstaklega eftir að liðið lenti undir og þurfti að fara gera eitthvað til að fá eitthvað út úr leiknum. „Þetta getur maður alveg skilið í stöðunni 0-0. Það er erfitt að fara gegn City og ætla að sækja mikið. Þetta finnst mér í rauninni vandræðalegt. Talandi um það að þetta eru meistarar frá síðustu leiktíð, lendir undir í þeirri stöðu sem þeir eru í,“ sagði Reynir og bætti við: „Þeir þurfa á stigum að halda til að ná inn í Meistaradeildina sem er grunnkrafa hjá liðinu. Mér þykir þetta bara vandræðalegur leikur hjá þeim. Þeir brutu leikinn aldrei upp í seinni hálfleik og áttu skilið að tapa þessum leik,“ sagði Reynir. Það má sjá alla umfjöllun Messunnar um leikstíl og markvörslu Chelsea í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Mest lesið Danir láta Gísla heyra það eftir gagnrýni: „Haltu kjafti Ísland“ Handbolti HSÍ ósátt við EHF: Skikkaðir á viðburð morguninn eftir langa nótt Handbolti Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“ Handbolti Leikmaður Dana fór á sjúkrahús eftir leikinn í kvöld Handbolti Alfreð enn kóngurinn en „jarðaður út og suður“ Handbolti Segir Dag hafa beðist afsökunar Handbolti EM í dag: Pirruðu danska blaðamenn og truflun í boði skattgreiðenda Handbolti Utan vallar: Af hverju töpuðu hetjurnar okkar gegn Dönum? Sport Pytlick: „Ísland átti meira skilið í kvöld“ Handbolti „Ég nenni ekki að eyða orku í þetta EHF lið“ Handbolti Fleiri fréttir Liverpool - Newcastle | Harður slagur á Anfield Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Sjá meira