Féll fimm sinnum í framhaldsskólastærðfræði en er nú komin á forsetalista HR Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. mars 2018 12:30 Til vinstri á mynd má sjá Ingibjörgu á forsetaathöfn við HR nú í febrúar þar sem hún tók við viðurkenningu fyrir góðan námsárangur. Til hægri sést bekkur Ingibjargar úr Mími við útskriftina í sumar. Ingibjörg aldís hilmisdóttir
Ingibjörg Aldís Hilmisdóttir prófaði fimm framhaldsskóla, og féll jafnmörgum sinnum í inngangsáfanga í stærðfræði, áður en hún gafst upp og byrjaði að vinna. Árið 2016 settist hún fyrir tilviljun aftur á skólabekk hjá Mími símenntun, kláraði stúdentspróf, hóf nám við Háskólann í Reykjavík og er nú komin á svokallaðan forsetalista sem heiðrar bestu nemendur skólans í hverri deild. Að lokinni BS-gráðu hyggur hún á nám í geimverkfræði. „Ég byrjaði í menntaskóla beint eftir grunnskóla og var dugleg að flakka á milli. Ég held ég hafi verið í fimm eða sex framhaldsskólum allt í allt. Ég vissi ekkert hvað mig langaði að gera og prófaði alls konar, ég fór í myndlist og prófaði svo fatahönnun í FSU,“ segir Ingibjörg í samtali við Vísi.Ingibjörg var fengin til þess að halda ræðu við útskriftina í Mími í byrjun sumars.Ingibjörg ALdís HilmisdóttirStærðfræðin stoppaði hanaHún segist alltaf hafa misst áhugann á skömmum tíma og flosnað upp úr námi. Stærðfræðin hafi enn fremur reynst henni stærsta hindrunin í framhaldsskóla. „Svo var stærðfræðin alltaf að stoppa mig. Ég var búin að fara fimm sinnum í stærðfræði 100 og féll í hvert einasta skipti. Ég var farin að halda að ég væri talnablind eða að stærðfræði væri hreinlega ekki fyrir mig sem mér fannst mjög leiðinlegt vegna þess að ég hafði mestan áhuga á öllu vísindatengdu,“ segir Ingibjörg. „Þannig að það var svona minn draumur að verða vísindamaður en ég þurfti að sætta mig við það að það væri ekki hægt ef ég gæti ekki reiknað „basic“ algebru.“Viðhorfið strax orðið neikvætt í grunnskóla Ingibjörg segist ekki gera sér almennilega grein fyrir hvað hafi valdið því að stærðfræðin hafi reynst henni jafn erfið og raun bar vitni. Hún segir viðhorf sitt til stærðfræðinnar strax hafa orðið neikvætt í barnaskóla og hún svo bitið í sig að fagið hentaði sér ekki. „Ég er svo rosalega þrjósk að ég held ég hafi bitið það í mig að ég gæti þetta ekki og myndi aldrei geta. Þannig að var þrjóska í mér sem lokaði svolítið á þetta,“ segir Ingibjörg. Ingibjörg ákvað að endingu að taka sér frí frá námi og fara út á vinnumarkaðinn. Þá flutti hún einnig að heiman og byrjaði að búa með kærasta sínum sem fyrir tilviljun ákvað að skrá sig í Mími. Ingibjörg fór að fordæmi kærastans og settist aftur á skólabekk haustið 2016 eftir nokkurra ára hlé, staðráðin í því að klára stærðfræðina.Ómetanlegur stuðningur frá kennara „Það er svo ótrúlega frábær stærðfræðikennari hjá Mími, hún Guðný, og hún stappaði í mig stálinu. Hún sagði mér að hætta öllu rugli og hvatti mig áfram í hverjum einasta tíma. „Það er ekkert sem er að stoppa þig nema þú,“ sagði hún og hjálpaði mér í gegnum þetta og það er bara búið að ganga vel síðan,“ segir Ingibjörg sem útskrifaðist í byrjun sumars 2017. „Og ég náði því markmiði sem ég setti mér, að fá 10 í stærðfræði.“Bekkur Ingibjargar, sem sést önnur frá vinstri, í Mími við útskriftina.Ingibjörg ALdís hilmisdóttirAð því búnu skráði Ingibjörg sig í tækni- og verkfræðigrunn við Háskólann í Reykjavík. „Ég ákvað bara að ég gæti þetta víst og ætlaði að láta drauminn rætast, að verða vísindamaður. Ég er þar núna og er að útskrifast þaðan í júní. Svo fer ég beint í vélaverkfræðina í HR,“ segir Ingibjörg.Setur stefnuna hátt, nánar tiltekið út í geim Nú fyrir skömmu fékk Ingibjörg þær fréttir að hún væri komin á forsetalistann svokallaða, heiður sem veittur er efstu 2,5 prósentum nemenda í hverri deild, og fær Ingibjörg því skólagjöldin niðurfelld. Hún stefnir hátt í framtíðinni. „Draumurinn er, þegar ég er búin með BS-gráðuna, að fara erlendis í master í annað hvort geimflaugaverkfræði eða geimverkfræði.“ Þá ítrekar Ingibjörg að margir séu e.t.v. í sömu stöðu og hún var í á menntaskólagöngu sinni. Aðspurð hvort hún búi yfir einhverjum ráðum til þeirra segir Ingibjörg að góðir kennarar og kennsla skipti höfuðmáli. Ekki megi þó gleyma því að treysta á sjálfan sig. „Og svo auðvitað bara – ekki gefast upp! Þetta er spurning um að halda áfram og vera ekki búinn að bíta í sig að maður geti ekki eitthvað af því bara.“
Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Erlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir Segja upp tveimur sérfræðingum Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Þúsundir barna bíða mánuðum saman „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Hjólreiðamaður slasaðist en reiðhjólið í lagi Efnaleki á Óseyri og fólk beðið um að halda sig fjarri Quang Lé frjáls sinna ferða „Grafalvarlegt ástand sem skapast“ Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla fiski úr sjókvíaeldi Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Sjá meira