Féll til bana á sýningu Cirque du Soleil Stefán Ó. Jónsson skrifar 19. mars 2018 05:49 Yann Arnaud sést hér til vinstri ásamt Goel Ouisse á sýningu Cirque du Soleil árið 2013. Vísir/Getty
Loftfimleikamaður fjölleikahússins Cirque du Soleil er látinn eftir að hafa fallið til bana á sýningu í Tampa Bay í Flórída. Yann Arnaud, 38 ára Frakki, hafði tekið þátt í atriði sem fram fór hátt yfir gólfi leikhússins á laugardag. Hafði hann meðal annars sveiflað sér á milli reipa sem héngu úr loftinu þegar óhappið varð og hann hrapaði til jarðar. Arnaud var fluttur á sjúkrahús þar sem hann svo lést af sárum sínum. „Öll Cirque du Soleil-fjölskyldan er í losti og miður sín,“ segir í yfirlýsingu fjölleikahússins, sem má lesa hér að neðan. Fyrirtækið segist nú vinna að rannsókn málsins með þarlendum lögregluyfirvöldum. Næstu tveimur sýningum þess hefur verið aflýst. Loftfimleikamaðurinn Arnaud hafði starfað með Cirque du Soleil í rúm 15 ár og er hans minnst með einskærum hlýhug af samstarfsmönnum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem starfsmenn fjölleikahússins látast við störf sín. Það gerðist síðast árið 2013 í Las Vegas þegar annar loftfimleikamaður féll til jarðar. Þá fannst sonur stofnanda Cirque du Soleil látinn í desember árið 2016 eftir að hafa orðið undir lyftu sem notuð var í sýningum hópsins.pic.twitter.com/L4oelKS8lT— Cirque du Soleil (@Cirque) March 18, 2018
Tengdar fréttir Banaslys í Cirque du Soleil Loftfimleikakona í hinni frægu Cirque du Soleil-sýningu í Las Veges lést eftir að hafa fallið um 15 metra í miðri sýningu í gærkvöldi. Vitni segja að slysið hafi átt sér stað í lok sýningarinnar. 1. júlí 2013 08:10 Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira
Banaslys í Cirque du Soleil Loftfimleikakona í hinni frægu Cirque du Soleil-sýningu í Las Veges lést eftir að hafa fallið um 15 metra í miðri sýningu í gærkvöldi. Vitni segja að slysið hafi átt sér stað í lok sýningarinnar. 1. júlí 2013 08:10