Körfuboltakvöld spáir í einvígi Hauka og Keflavíkur: „Þetta er bara bannað og þú talar ekki um þetta“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. mars 2018 11:00 Kári Jónsson, leikmaður Hauka, hefur átt flott tímabil vísir/anton
Deildarmeistarar Hauka og Keflavík spila í kvöld fyrsta leikinn sinn í átta liða úrslitum úrslitakeppni Domino´s deildar karla í körfubolta. Strákarnir í Körfuboltakvöldi fóru vel yfir komandi viðureign liðanna.Leikur eitt hjá Haukum og Keflavík fer fram á Ásvöllum í kvöld og verður í beinni á Stöð 2 Sport. Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður Keflavíkur, var ekki sá eini sem setti pressu á deildarmeistara Hauka fyrir viðureign Hauka og Keflavíkur. „Mér fannst Ívar líka setja sæmilega pressu á sitt lið. Hann er að tala um að vinna þetta,“ sagði Teitur Örlygsson. „Hoppa eiginlega tvær umferðir fram í tímann,“ skaut Kjartan Atli Kjartansson inn í. „Maður segir þetta kannski bara fyrir oddaleik í lokaúrslitum. Þetta er bara bannað og þú talar ekki um þetta,“ bætti Teitur við. „Þessi lokapilla hjá Herði er alveg rétt. Haukarnir eiga að vinna 3-0 og þeir eiga ekkert að leyfa að Keflavík að komast upp með neitt. Eins Ívar sagði þá eru styrkleikar þeirra svo margir og þá sérstaklega gegn Keflavík,“ sagði Kristinn Friðriksson. Hér fyrir neðan má sjá Kjartan Atla Kjartansson, Teit Örlygsson og Kristinn Friðriksson fara yfir einvígið og leikmannaglímurnar inn á vellinum. Þeir Teitur og Krisinn spá síðan hvernig einvígið fer í lokin og þar eru þeir ekki sammála um lokastöðu.
Dominos-deild karla Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira