Brosnan segir svindlað á sér Stefán Ó. Jónsson skrifar 15. mars 2018 06:57 Eins og sjá má í auglýsingunni tekur Pan bahar fram að ekkert tóbak sé að finna í vörunni. Það er þó ekki alveg sannleikanum samkvæmt.
Leikarinn Pierce Brosnan hefur tjáð indverskum stjórnvöldum að honum finnst sem fyrirtæki, sem fékk hann til að auglýsa vöruna sína þar í landi, hafi svindlað á sér. Brosnan hefur verið beðinn að útskýra aðkomu sína að auglýsingum fyrirtækisins Pan Bahar en í vörum þess má finna tóbak. Allar tóbaksauglýsingar eru stranglega bannaðar á Indlandi. Varan sem Brosnan auglýsti er það sem kallað er Paan Masala. Um er að ræða blöndu af hinum ýmsu kryddum, alla jafna í litlum pokum, og er hún sögð njóta töluverðra vinsælda í Asíu. Paan Masala er alla jafna tuggið eftir máltíðir til að fríska upp á munninn og hefur henni á Vesturlöndum því stundum verið líkt við tyggjó, þó það sé skyldara tyggitóbaki. Í bréfi sem Brosnan sendi til indverskra stjórnvalda segir hann að fyrirtækið sem réð hann til verksins, Ashok & Co, hafi ekki tjáð honum að í vörunni væri að finna tóbak. Þvert á móti hafi fyrirtækið í samtali við sig ítrekað að ekkert tóbak væri í vörunni og að það væri jafnvel undirstrikað í auglýsingunum sjálfum, eins og sjá má hér að ofan.Leikarinn hefur mátt sæta töluverðri gagnrýni á Indlandi allt frá því að fyrsta auglýsingin fyrir Pan Bahar birtist þar í landi árið 2016. Fjölmargir Indverjar botnuðu ekkert í því að þessi frægi leikari væri að auglýsa vöru sem talin er geta valdið krabbameini í munnholi. Brosnan hefur síðan þá ítrekað fordæmt fyrirtækið og vöru þess. Samstarfi þeirra hafi jafnframt verið rift og segist leikarinn ætla að beita sér gegn sambærilegum auglýsingaherferðum í framtíðinni. Þrátt fyrir mótmæli leikarans birtast auglýsingar Pan Bahar, þar sem hann er í aðalhlutverki, reglulega í indverskum miðlun.
Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira