Bráðaaðgerðir vegna fíknivanda hjá hópi ungmenna Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 7. apríl 2018 12:12 Félags-og jafnréttisráðherra ætlar að grípa til bráðaaðgerða vegna mikils fíknivanda hjá hópi ungmenna. Vísir
Unglingum sem leita meðferðar hjá Barnaverndarstofu og hafa notað sprautur og lyfseðilsskyld lyf til vímuefnaneyslu hefur fjölgað á undanförnum árum. Þá sýna tölur SÁÁ að fleiri ungmenni leita til samtakanna vegna fíknivanda en áður. Það sem af er ári hafa 74 leitarbeiðnir borist lögreglu vegna týndra barna en í flestum tilfellum er um að ræða börn sem nota vímuefni eða eiga við fíknivanda að etja. Þá hafa aldrei borist jafn margar leitarbeiðnir og í mars en þá var 34 barna leitað. Vísa hefur um tuttugu börnum frá Stuðlum á þessu ári vegna plássleysis. Í vikunni þurfti að þurfti að vista 14 og 15 ára stúlkur í miklum fíkniefnavanda í fangaklefa því engin önnur úrræði voru í boði. Ásmundur Einar Daðason félags- og jafnréttismálaráðherra kynnti aðgerðir vegna vandans á fundi ríkistjórnarinnar í gær og en hann segir óábyrgt samfélag sem bregðist ekki við svona þróun.Tvö ný úrræði „Við erum að vinna að því að því að koma upp nýju úrræði sem miðar að því að aðstoða einstaklinga sem hafa verið lengi í kerfinu að aðlagast samfélaginu á nýjan leik. Þá heimilislífi, skóla og þess háttar. Við erum að vonast til að það úrræði verði í boði eftir um tvær vikur. Síðan ætlum við að ráðast í kortlagninu á þeim úrræðum sem eru í boði hjá stjórnvöldum og hvort að það þurfi að gera meira eða hvað þurfi að gera. Það er gert ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki eftir um tvo mánuði.“ Hann segir að eftir að koma í ljós hversu miklum fjármunum verði varið í verkefnin. „Miðað við umræður í ríkisstjórn og þann bráðavanda sem þarna liggur fyrir er alveg ljóst að það mun þurfa að setja fjármagn í þetta og ég held að það er fullur pólitískur vilji til þess.“Samfélagslegt átak mikilvægt Ásmundur Einar segir að bregðast þurfi við á öllum sviðum samfélagsins. „Við þurfum að vera á tánum í þessum málum bæði hvað varðar forvarnir, löggæslu og eftirlit og í ljósi þess vanda sem nú liggur fyrir þurfum við að spyrja okkur hvort þar þurfi ekki líka samhent átak.“
Mest lesið Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira