Margir í áfalli eftir stórbruna Sigurður Mikael Jónsson skrifar 6. apríl 2018 04:45 Bunurnar virtust mega sín lítils gegn vítislogum og tinnusvörtum reykmekkinum sem vofði yfir í Miðhrauni í gær. Slökkviliðsmenn og aðrir viðbragðsaðilar sem kallaðir voru á vettvang unnu þrekvirki. Vísir/Vilhelm „
Þetta er gífurlegt áfall fyrir þessi fyrirtæki og einstaklinga sem áttu þarna margir dýrmæta hluti og annað í geymslunum. Þessi atburður snertir marga sem eru vafalaust að ganga í gegnum erfiða tíma,“ segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins, um stórbrunann að Miðhrauni 4 í Garðabæ í gær. Atvinnuhúsnæðið er að verulegum hluta ónýtt og tjónið hleypur líklega á hundruðum milljóna króna. Eldurinn kom upp um áttaleytið í gærmorgun og skíðlogaði í húsinu langt fram eftir degi. Allt tiltækt lið slökkviliðsmanna barðist hetjulega við eldtungur, reyk og erfiðar aðstæður langt fram eftir degi. Bruninn var erfiður viðureignar en slökkviliðið taldi sig fyrst hafa náð tökum á honum seinnipartinn. Mikinn og dökkan reykjarmökk lagði frá húsinu og yfir nærliggjandi byggð. Jón Viðar bjóst við að slökkvistarf stæði fram á nótt. Á vettvangi hafði fljótt safnast saman fjöldi vegfarenda og fulltrúa fjölmiðla innan um tækjaflota viðbragðsaðila og allt tiltækt lið. Vegfarendur voru sumir þar fyrir forvitnissakir en á öðrum mátti greina örvæntingu og áhyggjur yfir persónulegum munum. Í húsinu var, auk lagers og starfsemi Icewear, fyrirtækið Geymslur sem leigir geymslupláss sem margir nýta undir eigur sínar og jafnvel búslóð. Eins og einn maður sem Fréttablaðið ræddi við á vettvangi.Geymslur loguðu og ljóst að tjón er margvíslegt og mikið.Vísir/eyþór„Líklega er það bara allt farið,“ sagði maðurinn sem baðst undan viðtali en upplýsti blaðamann um að hann stæði í flutningum og hefði leigt geymslu í húsinu undir búslóð sína fyrir um mánuði. Hann bar sig þó vel, í skugga tjónsins. Á vettvangi, bak við lögregluborða sem girtu af hættusvæði, fylgdust fleiri með í von um fréttir af eigum sínum og hvort geymslurnar myndu sleppa. Eftir því sem á leið urðu líkurnar hverfandi. „Ef ég á að vera alveg hreinskilinn við þig, myndi ég búast við því versta,“ sagði lögreglumaður við leigutaka hjá Geymslum sem bar að á hjóli snemma morguns og spurði frétta. Hann kvaðst eiga dót í geymslu, en varð frá að hverfa á hjóli sínu, út í óvissuna og reykmökkinn svarta. Nafntogaðir einstaklingar á borð við tónlistarmennina Björgvin Halldórsson og Sigríði Beinteinsdóttur óttuðustu sömuleiðis að verðmæti þeirra og eigur hefðu orðið eldinum að bráð, líkt og Fréttablaðið.is fjallaði um. „Þetta er milljóna tjón fyrir mig,“ sagði Sigríður. Aðspurður segir Jón Viðar brunann fara langt með að vera stærsti bruni sem hans fólk hafi tekist á við síðan í Skeifubrunanum sumarið 2014. „Þó erfitt geti verið að meta stærð bruna, þá flokkast þessi klárlega sem stórbruni.“Jón Viðar Matthíasson slökkvliðsstjóri. Vísir/StefánÁhyggjufullum geymsluleigjendum var í gær ráðlagt að hafa sem fyrst samband við tryggingafélög sín. Engar tryggingar eru innifaldar í leiguverðinu hjá Geymslum en talsmaður Sjóvár sagði fjölskyldutryggingar almennt tryggja allt að 15 prósent af vátryggingarfjárhæð í brunatjónum utan heimilis. Brúnaþungir fulltrúar tryggingafélaganna voru fljótt komnir á vettvang í Miðhrauni í gærmorgun til að rýna í tjónið. Fasteignafélagið Reginn, sem á stærstan hluta Miðhrauns 4, sendi tilkynningu til Kauphallar í gær þess efnis að húsið væri líklega ónýtt en hefði ekki áhrif á afkomu hins skráða félags. Kom fram að brunabótamat eignarhluta þess væri um 700 milljónir. Heildartjónið kann því að vera mikið og telur Jón Viðar húsið ónýtt. Lagerhluti þess í miðrýminu sé gjörónýtur. Suðurhluti hússins, sem hýsti geymslur, og norðurhluti, sem var skrifstofa, séu þó ekki eins illa farin. „Þegar svona stór hluti hússins er þetta illa farinn þá er heildin líklega ónýt. Húsið er á það slæmum stað að viðgerð myndi aldrei borga sig.“ Meðan slökkvistarf stendur enn yfir á margt eftir að koma í ljós, þar á meðal eldsupptök. Hjá þeim sem bíða fregna af afdrifum eigna sinna í geymslurýmum, kann mesta tjónið að vera tilfinningalegs eðlis og því seint metið til fjár.
Birtist í Fréttablaðinu Stórbruni í Miðhrauni Tryggingar Tengdar fréttir Starfsfólk Icewear braut upp hurðir og flúði út um glugga Framkvæmdastjóri Icewear segir það hafa verið tæpt að starfsmenn fyrirtækisins kæmust út þegar eldur kom upp í húsnæðinu á níunda tímanum í morgun. 5. apríl 2018 12:13 JóiPé og Króli sjá eftir myndatöku við brunann Rappararnir JóiPé og Króli kíktu á vettvang. 5. apríl 2018 10:54 Slökkviliðsmaður borinn út úr brunanum í Miðhrauni Slökkvilið hefur verið að störfum við gríðarlega erfiðar aðstæður frá því snemma í morgun. 5. apríl 2018 14:29 Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Brotist inn í garnverslun í Árbæ Innlent Bogi Ísak Nilsson er látinn Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Erlent Fleiri fréttir Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Sjá meira
Starfsfólk Icewear braut upp hurðir og flúði út um glugga Framkvæmdastjóri Icewear segir það hafa verið tæpt að starfsmenn fyrirtækisins kæmust út þegar eldur kom upp í húsnæðinu á níunda tímanum í morgun. 5. apríl 2018 12:13
JóiPé og Króli sjá eftir myndatöku við brunann Rappararnir JóiPé og Króli kíktu á vettvang. 5. apríl 2018 10:54
Slökkviliðsmaður borinn út úr brunanum í Miðhrauni Slökkvilið hefur verið að störfum við gríðarlega erfiðar aðstæður frá því snemma í morgun. 5. apríl 2018 14:29