Ágæt morgunveiði við Elliðavatn á opnunardegi Karl Lúðvíksson skrifar 19. apríl 2018 10:45 Vorurriði Mynd: Atli Bergman
Veiði hófst í Elliðavatni í dag Sumardaginn fyrsta og fyrstu fréttir af veiðimönnum við vatnið lofa góðu. Við höfum fengið fregnir frá nokkrum veiðimönnum sem standa vaktina við vatnið og þeir eru flestir nokkuð kátir með morguninn. Þeir sem eru vanir við vatnið á þessum tíma vita hvar bestu staðirnir eru og hvað þarf til að fá fiskinn til að taka. Fiskur var að taka við Elliðavatnsbæinn og eins var ágætur maður við Þingnesið í morgun sem fékk fjóra fiska og þar af einn um 5 pund. Að sögn veiðimanna er urriðinn vel haldinn eftir veturinn og mest af því sem er að veiðast er 1-2 punda fiskur. Ekki hefur nein bleikja verið í aflanum en hún fer að taka betur þegar líður á maí. Einhver brögð munu vera að því að beituveiðimenn séu að nota makríl við vatnið en þess ber að geta að það er ekki leyfileg veiðiaðferð. Eins má árétta að umgengni sumra veiðimanna er stórlega ábótavant en þó er umgengnin við vatnið núna mun betri en hún var fyrstu dagana í fyrra.
Mest lesið Nýjar vikulegar veiðitölur á rólegu sumri Veiði Eystri Rangá vinsælust hjá Lax-Á Veiði Fínasta veiði í Apavatni Veiði 27 fiska holl í Tungufljóti Veiði Eystri Rangá með flesta veidda laxa í vikunni Veiði Sogið greinilega að taka við sér Veiði Mikil eftirspurn eftir laxveiðileyfum fyrir 2017 Veiði Angling IQ búið að opna fyrir aðgang Veiði Styttist í opnun Setbergsár Veiði Mikil hrognanotkun í Elliðavatni þrátt fyrir bann Veiði