Aflífuðu 58 vannærðar kindur á Austurlandi Kristín Ólafsdóttir skrifar 16. apríl 2018 11:14 Féð var illa á sig komið vegna vannæringar og ekki hugað líf. Myndin tengist fréttinni ekki beint. vísir/vilhelm
Matvælastofnun hefur svipt sauðfjárbónda á Austurlandi hluta fjár hans en alls 58 kindur voru aflífaðar í aðgerðum stofnunarinnar síðastliðinn föstudag, að því er fram kemur í tilkynningu frá Matvælastofnun. Í tilkynningu kemur fram að féð hafi verið illa á sig komið vegna vannæringar og ekki hugað líf. Þá hefur Matvælastofnun þurft að hafa ítrekuð afskipti af búskap bóndans sökum margvíslegrar vanhirðu og hefur stofnunin haft náið eftirlit með býlinu í vetur. Stofnunin kannaði ástand búsins í mars en þá höfðu kröfur hennar ekki verið virtar og ástand versnað. Þriðjungur fjársins reyndist þá vannærður, mældist af holdastigi 1,5 en 2-4 telst viðunandi eða gott, vegna vanfóðrunar og lélegra heygæða. Ljóst var að margar kindur höfðu orðið fyrir varanlegum skaða og að þeim yrði ekki bjargað. Áfram verður unnið að úrbótum fyrir féð sem eftir lifir á bænum og eru frekari aðgerðir fyrirhugaðar síðar í mánuðinum með það að markmiði að tryggja velferð fjárins eins og kostur er.
Dýr Landbúnaður Mest lesið Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Innlent Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Innlent Mótmælendur trufluðu þingfund Innlent Myndataka í lágloftunum vekur athygli Innlent Fleiri fréttir Engar vísbendingar um kvikusöfnun en ríflega sjö hundruð skjálftar Fleiri bitnir af hundunum Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ „Þá þurfum við að gera miklu betur“ Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Andlát á Hólmsheiði og skammtímasamningur á borðinu í flugdeilunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni „Það er enginn réttindagæslumaður starfandi á landsbyggðinni“ Senda loftbelgi á loft á hálftíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir Undirbúa íbúafund þar sem farið verði yfir stöðu mála Líkamsárás á veitingastað í miðborginni og umfangsmikill þjófnaður Sjá meira