Stolið málverk aftur til eigenda sinna eftir 30 ár Stefán Ó. Jónsson skrifar 13. apríl 2018 07:24 Hjónin höfðu fest kaup á verkinu á þriðja áratug síðustu aldar. FBI
Rúmlega 100 ára gamalt málverk eftir Marc Chagall er fundið eftir að hafa verið stolið af heimili fjölskyldu í New York árið 1988. Alríkislögregla Bandaríkjanna segir að fjölskyldan muni aftur fá það í hendurnar eftir að hafa hvorki séð tangur né tetur af því í 30 ár. Chagall málaði verkið Óþelló og Desdemóna árið 1911 og var því stolið úr íbúð þeirra Ernest og Rose Heller, ásamt fjölda annarra listmuna og skartgripa.Lögreglan er sögð hafa komist á snoðir um málverkið þegar samviskusamur eigandi listasafns í Washington DC. neitaði tvívegis að kaupa verkið í fyrra. Hann hvatti seljandann til að setja sig í samband við yfirvöld til að fá úr því skorið hvort málverkið væri raunverulega eftir Chagall. Það gerði maðurinn og kom þá í ljós að um hið stolna Chagall-verk væri að ræða. Maðurinn sem reyndi að selja verkið hafði geymt það í sérútbúnum kassa á háalofti heimilis síns í Maryland árum saman. Hann hafði fengið verkið frá öðrum manni í lok níunda eða byrjun tíunda áratugarins en sá maður er grunaður um að hafa stolið því frá Hellers-hjónunum. Þau eru bæði látin en eftirlifendur þeirra munu fá Chagall-verkið í hendurnar. Hellers-hjónin voru efnuð og nýttu auðæfi sín til að sanka að sér ýmsum listmunum. Þau áttu til að mynda verk eftir listamenn á borð við Renoir, Picasso, Hopper og fyrrnefndan Chagall. Verkið er innblásið af skrifum Shakespeare og má þar sjá Óþelló haldandi á sverði er hann horfir á eiginkonu sína, Desdemónu. Upphafsstafir eigendanna, „Mr + Mrs ES Heller, New York“ voru enn ritaðir á verkið. Þau höfðu fest kaup á verkinu á þriðja áratug síðustu aldar.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira