Berjast um 80 milljóna brunarúst Stefán Ó. Jónsson skrifar 12. apríl 2018 07:55 Heitasta eignin á markaðnum. Facebook
Fasteignasali í Kísildalnum hefur átt í vök verjast eftir að hafa auglýst hús til sölu á 800 þúsund dali, rétt rúmlega 80 milljónir íslenskra króna. Það þykir í sjálfu sér ekki hátt fasteignaverð á þessum gríðarlega vinsæla stað í Kaliforníu, sem er skammt frá mörgum af stærstu tæknifyrirtækjum heims. Netverja rak hins vegar í rogastans þegar þeir sáu myndina af fasteigninni sem er ein brunarúst eftir mikinn eldsvoða fyrir tveimur árum síðan. Eins og sjá má af myndunum hér að ofan og neðan stendur hjallurinn óíbúðarhæfur eftir. Um er að ræða lítið einbýlishús og 540 fermetra lóð á hinu svokallaða Flóasvæði San Francisco. Íbúðaverð í borginni hefur hækkað hratt á undanförnum árum og þá ekki síst vegna hálaunaðra hátæknistarfa sem fjölgað hefur gríðarlega á svæðinu.Stór garður, tilvalinn fyrir kaupendur með græna fingur.FacebookÞrátt fyrir að íbúðaverð sé almennt hátt í San Francisco fékk fasteignasalinn engu að síður að heyra það á Facebook, þar sem hann auglýsti brunarústina. Var hún meðal annars kölluð „ruslagámur með þaki“ af einum örgum netverja. Fasteignasalinn Holly Barr lætur þetta þó ekki á sig fá og segir í samtali við fjölmiðla vestanhafs að verðið sé fullkomlega réttlætanlegt. Ekki aðeins sé lóðin nokkuð stór miðað við það sem gengur og gerist heldur sé það skammt frá stórfyrirtækjum á borð við Facebook og Google, fyrirtækjum sem geti borgað há laun. Því ætti kaupandi á þessu svæði að hafa greiðslugetuna til að fjárfesta í þessari einstöku eign. Barr segir að til marks um að verðið sé ekki út úr kú þá hafi hún þegar fengið nokkur tilboð í eignina. Hún býst jafnvel við því að verðið kunni að hækka enn meira, áhuginn sé svo mikill. Fulltrúi fasteignasalasamtaka á svæðinu segir að verðið komi sér ekki á óvart. Meðalverð íbúða í hverfinu sé 1,4 milljónir dala, rúmar 140 milljónir króna, og að verðið hækki að meðaltali um 58 þúsund krónur á dag vegna eftirspurnarinnar. Það gerir árlega verðhækkun upp á rúmlega 21 milljón króna.Eignin býður upp á mikla möguleika fyrir handlagna.Facebook
Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Fleiri fréttir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Sjá meira