Coleman leystur undan samningi hjá Sunderland og félagið selt Anton Ingi Leifsson skrifar 29. apríl 2018 22:00 Það er allt í rugli hjá Sunderland. vísir/afp
Chris Coleman hefur verið leystur undan samningi sínum sem stjóri Sunderland eftir að liðið féll úr B-deildinni niður í C-deildina á dögunum. Sunderland, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð, féll aftur niður um deild þetta tímabilið og hefur liðið því fallið niður um tvær deildir á tveimur árum. Coleman tók við liðinu í nóvember af Simon Grayson en hann hætti með Wales til þess að taka við stjórnartaumunum á leikvangi ljóssins. Hann vildi halda áfram hjá félaginu en nú er hann horfinn á brott. Aðstoðarmaður Coleman hefur einnig verið leystur undan samningi en liðið á eftir að spila einn leik í B-deildinni á þessu tímabili. Ekki er ljóst hver stýrir liðinu í þeim leik sem lýsir ástandinu vel. Ellis Short, eigandi Sunderland, hefur einnig greint frá því að hann sé búinn að samþykkja tilboð í félagið en nokkrir aðilar hafa ákveðið að kaupa félagið saman. Þar fremstur í flokki fer athafnamaðurinn Stewart Donald. Hann hefur nú þegar borgað allar skuldir Sunderland en skuldir félagsins eru rosalegar. Liðið hefur verið á lista UEFA yfir mestu skuldir allra liða í Evrópu en liðið situr þar í þrettánda sæti fyrir ofan félög eins og PSG og Porto.
Fótbolti Mest lesið Aldrei séð Dag svona reiðan Handbolti „Þetta er bara einn af mönnum mótsins hingað til“ Handbolti Tennisstjörnurnar fela hluti í nærfötunum Sport „Lítill stuðningur við strákana okkar að auglýsa í fjölmiðlum“ Handbolti „Gjörsamlega glórulaust“ Handbolti „Aðrir sjá um að tuða yfir því“ Handbolti Alfreð stóð með Degi: „Ekki eins og best verður á kosið“ Handbolti Sigvaldi kallaður inn í íslenska hópinn Handbolti EHF svarar Degi: Viðurkenna að Ísland og Króatía glími við erfiðari aðstæður Handbolti „Þá myndu þeir ljúga að mér“ Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira