Miðborg Berlínar rýmd vegna sprengju úr seinna stríði Stefán Ó. Jónsson skrifar 20. apríl 2018 06:54 Sprengjan fannst á vinnusvæði við Heidelstraße Vísir/epa
Heljarinnar rýming mun fara fram í miðborg Berlínar í dag. Þar munu sérfræðingar reyna að aftengja sprengju frá tímum síðari heimsstyrjaldarinnar sem fannst á vinnusvæði nærri aðallestarstöð borgarinnar á dögunum. Rýmingin hefst klukkan 7 að íslenskum tíma og nær hún til allra húsa í 800 metra radíus frá sprengjunni. Innan þess svæðis falla opinberar byggingar, á borð við sendiráð Indónesíu og Úsbekistan, hersjúkrahús, tvö ráðuneyti og fyrrnefnd lestarstöð. Flug til og frá Tegel-flugvelli mun þó ekki raskast, þrátt fyrir að því hafi verið beint til flugmanna að fljúga ekki beint yfir hinu rýmda svæði. Lögreglan telur þó ekki mikla hættu á því að hin 500 kílóa sprengja, sem varpað var úr breskri sprengjuflugvél í seinna stríði, muni springa. Talið er að sjálf aftenging sprengjunnar fari fram seinni partinn í dag og ætti fólk því aftur að komast til vinnu sinnar og heimila í kvöld. Fjölmargar sprengjur hafa fundist í Berlín og öðrum þýskum borgum á síðustu árum. Bandamenn vörpuðu ógrynni sprengja á Þýskaland á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar og urðu margar borgir illa úti, til að mynda Dresden sem var nánast jöfnuð við jörðu. Rýmingar sem þessar eru því nokkuð tíðar þar í landi og þekkjast fá dæmi þess að sprengjur hafi sprungið þegar reynt hefur verið að aftengja þær.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira