Rússneskir útsendarar þóttust vera tölvuþrjótar ISIS Samúel Karl Ólason skrifar 8. maí 2018 08:45 Angela Ricketts og skilaboðin sem hún fékk frá útsendurum Rússlands sem þóttust vera ISIS-liðar. Vísir/AP
Rússneskir útsendarar þóttust vera tölvuþrjótar Íslamska ríkisins þegar þeir gerðu meðal annars árásir á fimm eiginkonur bandarískra hermanna og hótuðu að myrða þær og fjölskyldur þeirra. Útsendararnir umræddu hafa verið bendlaðir við tölvuárásir um allan heim. Konurnar fimm fengu hótanirnar nærri samstundis þann 10. febrúar 2015. Ein þeirra heitir Angela Ricketts. Þann dag fékk hún skilaboð á Facebook. „Kæra Angela. Blóðugan Valentínusardag. Við vitum allt um þig, eiginmann þing og börnin ykkar. Við erum ykkur nærri en þú getur ímyndað þér.“ stóð í skilaboðunum frá CyberCaliphate.AP fréttaveitan, í samstarfi við öryggisfyrirtækið Secureworks, hefur fundið sannanir fyrir því að hópur rússneskra tölvuþrjóta sem í daglegu tali eru kallaði Fancy Bear eða APT28 gerði árásir á konurnar fimm. Ekki tölvuþrjótar Íslamska ríkisins. APT28 er rekinn af leyniþjónustu rússneska hersins, GRU.Þetta er ekki í fyrsta sinn sem öryggissérfræðingar finna á milli CyberCaliphate og Fancy Bear og segir AP að öryggissérfræðingar séu sammála um að hóparnir tengist nánum tengslum. Sérfræðingar segja þennan tiltekna hóp hafa ráðist á tölvukerfi landsnefndar Demókrataflokksins í aðdraganda forsetakosninga Bandaríkjanna 2016 og þeir eru sömuleiðis sagðir hafa herjað á tölvukerfi Emmanuel Macron í aðdraganda forsetakosninganna í Frakklandi í fyrra.Markmiðið með því að hóta konunum fimm var að ýta undir ótta í Bandaríkjunum við öfgamennina í Íslamska ríkinu og virðist sem að það hafi heppnast. Mikið var fjallað um konurnar fimm og skilaboðin sem þær fengu í fjölmiðlum í Bandaríkjunum. „Tröllaverksmiðja“ Rússa ýtti svo undir þennan ótta, meðal annars, með fölsuðum fréttum og myndumSjá einnig: Upplýsingahernaður háður úr „Tröllaverksmiðju“ í PétursborgFrönsk sjónvarpsstöð varð fyrir árásum Nokkrum vikum eftir að konunum bárust hótanir stöðvaðist útsending frönsku sjónvarpsstöðvarinnar TV5 Monde. Heimasíða sjónvarpsstöðvarinnar lá sömuleiðis niðrir og það eina sem sást þegar hún var opnuð var merki CyberCaliphate. Þetta var skömmu eftir að árásin á Charlie Hebdo var gerð og stakk innanríkisráðherra Frakklands fljótt upp á því að TV5 Monde væri fórnarlamb hryðjuverka. Yfirmaður netöryggisstofnunnar Frakklands, Guillaume Poupard, neitaði hins vegar alfarið að styðja yfirlýsingu ráðherrans. Hann sagði allt of fljótt að segja til um uppruna árásarinnar og sagði enn fremur að niðurstaðan gæti komið fólki á óvart. Skömmu seinna komust sérfræðingar að því að sönnunargögn í vefþjónum TV5 Monde bendu ekki til Mið-Austurlanda heldur til Moskvu.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Fleiri fréttir Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Sjá meira