Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. september 2026 07:38 Frá Kaupmannahöfn. Volha Shukaila/Getty Images Bensín- og dísilbílar gætu brátt orðið sjaldgæf sjón í Vesterbro-hverfinu í Kaupmannahöfn í Danmerku en meirihluti í loftlags-, umhverfis- og tækninefnd borgarinnar samþykkti tillögu um svokallað „núllosunarsvæði“ í hluta hverfisins.
Í umfjöllun danska ríkisútvarpsins kemur fram að tillagan banni í grundvallaratriðum ferðalög um svæðið á bensín- og díselbílum. Umhverfisstofnun Danmerkur þurfi að samþykkja tillöguna auk þess sem hún þarf síðan samþykki í borgarstjórn. Upphaflega hafi tillagan náð yfir stærra svæði en það hafi verið minnkað eftir neikvæðar umsagnir frá íbúum, fyrirtækjum og hagsmunasamtökum sem gagnrýndu tillöguna. Þá hefur danska ríkisútvarpið eftir Lone Billehøj formanni hverfisráðs Vesterbro að undanþágur verði í gildi fyrir ýmsa starfsemi líkt og fyrir líkbíla og sérhæfð ökutæki. Þá hafi hverfisráðið farið fram á að ein gata yrði undanþegin vegna hótelstarfsemi svo hægt væri að nota fjölda bílastæða undir hóteli við götuna. Haft er eftir honum að hann hlakki þó til að sjá hvort hægt verði að stækka svæðið í framtíðinni. „Ég held að það sem sé mikilvægt sé að við fáum að prófa okkur áfram til að sjá hvað virkar og hvað virkar ekki víðsvegar um Kaupmannahöfn,“ segir Billehøj sem segir að þörf væri á heildstæðri umferðaráætlun fyrir alla Kaupmannahöfn sem og nærliggjandi sveitarfélög.
Danmörk Samgöngumál Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Forystan sé búin að missa klefann Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira