Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Lovísa Arnardóttir skrifar 29. september 2026 07:25 Norlén fundar með formönnum á morgun. Vísir/EPA Andreas Norlén, þingmaður hægriflokksins Moderaterna, var í gær endurkjörinn sem forseti sænska þingsins. Norlén fundar á morgun með formönnum flokka til að afhenda nýjum leiðtoga stjórnarmyndunarumboðið.
Norlén hefur gegnt embættinu frá árinu 2018 og var búist við því að nýr forseti tæki við í gær þar til Vinstri flokkurinn tilkynnti á sunnudagskvöld að hann myndi kjósa Norlén til forseta þingsins. „Það gæti tekið langan tíma fyrir Svíþjóð að fá ríkisstjórn. Þá þurfum við stöðugleika og fastan punkt. Þess vegna munum við greiða Andreas Norlén atkvæði okkar,“ sagði Ida Gabrielsson, varaformaður flokksins, í þættinum Agenda. Greint var frá því í gær að Magdalena Andersson formaður Jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð segðist hafa gefist upp á stjórnarmyndun til vinstri eftir að Vinstriflokkurinn á sænska þinginu hafnaði tillögu þeirra að nýjum forseta. Hún tilkynnti á blaðamannafundi snemma í gær að hún sæi engan möguleika á því að mynda ríkisstjórn. Í umfjöllun sænska miðilsins Aftonbladet kemur fram að í kjölfarið hafi Simona Mohamsson, leiðtogi Frjálslynda flokksins, boðið Vinstri flokknum til viðræðna. Síðar í gær var Andreas Norlén úr Moderaterna endurkjörinn forseti þingsins. Hann fékk 200 atkvæði og Johanna Haraldsson úr Jafnaðarmannaflokknum fékk 146 atkvæði. Í frétt Aftonbladet segir að endurtelja hafi þurft atkvæðin í kosningunni og að eitt atkvæði hafi verið ógilt. Finnur nýjan leiðtoga Norlén hefur boðað formenn flokka til fundar á morgun, miðvikudag, og getur eftir það falið nýjum leiðtoga stjórnarmyndunarumboð. Fram kemur í frétt Aftonbladet að forseti þingsins geti í mesta lagi lagt fram fjórar tillögur að forsætisráðherra til atkvæðagreiðslu í þingsalnum, verði þær allar felldar verði boðað til aukakosninga. Þingkosningar í Svíþjóð fóru fram fyrr í mánuðinum þar sem ríkisstjórnarflokkarnir lutu í lægra haldi fyrir stjórnarandstöðuflokkunum. Þar fékk flokkur Andersson flest atkvæði, 28 prósent. Þar á eftir var flokkur Ulf Kristersson, Moderante, sem fékk 19,8 prósent atkvæða. Í kjölfarið sagði Kristersson af sér embætti forsætisráðherra.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Tengdar fréttir Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Formaður Vinstriflokksins í Svíþjóð telur að rannsókn á kosningasvindli sem gagnaðist nýkjörnum þingmanni flokksins hafi ekki áhrif á stjórnarmyndunarviðræður. Þetta er í fyrsta skipti sem formaðurinn tjáir sig um rannsóknina. 24. september 2026 08:48 Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Þingmaður Vinstriflokksins í Svíþjóð sem virðist hafa notið góðs af kosningasvindli segist ætla í leyfi á meðan lögregla rannsakar málið. Hann segist ekki hafa komið nálægt svindli og engar upplýsingar hafa enn bendlað hann persónulega við það. 22. september 2026 14:28 Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Sænsk yfirvöld rannsaka nú meint kosningasvindl eftir að kæra barst yfirvöldum í kjölfar þingkosninganna í Svíþjóð þann 13. september síðastliðinn. Frambjóðandi Vinstriflokksins er meðal annars sakaður um að hafa borgað fólki fyrir að merkja við sig á kjörseðlinum. 22. september 2026 07:37 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Sjá meira
Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Formaður Vinstriflokksins í Svíþjóð telur að rannsókn á kosningasvindli sem gagnaðist nýkjörnum þingmanni flokksins hafi ekki áhrif á stjórnarmyndunarviðræður. Þetta er í fyrsta skipti sem formaðurinn tjáir sig um rannsóknina. 24. september 2026 08:48
Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Þingmaður Vinstriflokksins í Svíþjóð sem virðist hafa notið góðs af kosningasvindli segist ætla í leyfi á meðan lögregla rannsakar málið. Hann segist ekki hafa komið nálægt svindli og engar upplýsingar hafa enn bendlað hann persónulega við það. 22. september 2026 14:28
Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Sænsk yfirvöld rannsaka nú meint kosningasvindl eftir að kæra barst yfirvöldum í kjölfar þingkosninganna í Svíþjóð þann 13. september síðastliðinn. Frambjóðandi Vinstriflokksins er meðal annars sakaður um að hafa borgað fólki fyrir að merkja við sig á kjörseðlinum. 22. september 2026 07:37