Lögreglumenn lúskruðu á óvopnuðum manni Stefán Ó. Jónsson skrifar 7. júní 2018 06:56 Manninum var gert að færa sig upp að vegg. Skömmu síðar hófust barsmíðarnar. Skjáskot
Lögreglan í Mesa-borg í Arizona birti í gær myndband úr öryggismyndavél þar sem sjá má lögreglumenn ganga í skrokk á óvopnuðum manni. Barsmíðarnar áttu sér stað þann 23. maí síðastliðinn. Í myndbandinu, sem sjá má hér að neðan, sést hvernig fjórir lögreglumenn veitast að manninum. Einn þeirra rekur hné í maga hans, skellir höfði mannsins í lyftuhurð á meðan annar slær hann þéttingsfast í höfuðið. Lögreglan hafði verið send að íbúðarblokk þar sem þau rákust á manninn, sem nafngreindur hefur verið sem Robert Johnson. Lögreglumenninir skipuðu honum að setjast niður á meðan þeir ræddu við hann. Johnson byrjar þá að tala í farsíma og skömmu síðar hefjast barsmíðarnar. Lögreglumennirnir segja að Johnson hafi ekki hlýtt fyrirmælum þeirra og verið ógnandi í samskiptum. Hann hefur nú verið kærður fyrir að brjóta gegn valdstjórninni og hindra framgang réttvísinnar. Í frétt VOX um málið segir hins vegar að ekki liggi fyrir hvað Johnson á að hafa hindrað. Lögreglustjórinn í Mesa sagði í samtali við fjölmiðla að embættið hafi viljað gera myndbandið opinbert til að varpa ljósi á málið. Hann segist telja að lögreglumenn sínir hafi ekki verið upp á sitt besta og að honum þyki miður að málið hafi þróast með þessum hætti. Fjórir lögreglumenn sem sjást í myndbandinu hafa verið sendir í leyfi frá störfum meðan atvikið er til rannsóknar. Lögreglan gerir ráð fyrir því að opinbera fleiri myndbönd af handtökunni á næstu dögum.Barsmíðarnar hefjast þegar þrjár mínútur eru liðnar af myndbandinu.
Bandaríkin Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Sjá meira