Fyrsta vaktin í Blöndu gaf 10 laxa Karl Lúðvíksson skrifar 6. júní 2018 08:06 Reynir M. Sigmundsson með flottan lax úr Blöndu í gær. Mynd: Lax-Á FB
Veiði hófst í Blöndu í gærmorgun og þrátt fyrir nokkuð erfið skilyrði skilaði áin sínu. Alls veiddust tíu laxar á fyrstu vakt í gær og annað eins slapp af færi veiðimanna. SKilyrðin voru nokkuð erfið en nokkuð mikill litur var á ánni sem og mikið vatn en þrátt fyrir það var mikið líf á svæðinu og greinilegt að það er töluvert af laxi að ganga í Blöndu þessa dagana. Það gæti þess vegna verið mjög spennandi að vera einn af þeim fyrstu sem stendur við bakkann þegar hún sjatnar aðeins og liturinn fer úr henni. Þeir sem þekkja Blöndu vita sem er að það eru fáar laxveiðiár á Íslandi jafn gjöfular við þær aðstæður eins og hún. Það verður fróðlegt að sjá næstu daga þegar veiði fer almennilega af stað á efri svæðunum í Blöndu en þau eru mjög frábrugðin fyrsta svæði. Svæði II er langt og þar er að finna ansi marga skemmtilega veiðistaði það er óhætt að segja að þetta svæði sé bæði krefjandi en líka mjög skemmtilegt. Svæði III hefur síðan meiri afmarkaða veiðistaði en svæði II og hefur vaxið í vinsældum síðustu ár. Að öðrum svæðum ólöstuðum í ánni er svæði IV algjörlega einstakt og klárlega "bucket list" mál fyrir alla veiðimenn að prófa. Set þetta svæði næstum því á par við Svæði IV í Stóru Lax-Á.
Mest lesið Meira af tölfræði í Eystri Rangá 2020 Veiði 1.470 laxa vika í Eystri Rangá Veiði Laxinn mættur í veiðina í Grímsá Veiði Nýjar vikutölur úr laxveiðiánum Veiði Haukadalsvatn kraumaði að sjóbleikju Veiði Frábær dagskrá fræðslunefndar SVFR Veiði Veiðilíf Flugubúllunar komið út Veiði Gæsaveiðin gengur vel þrátt fyrir kuldahret Veiði Stórir urriðar í Laxárdalnum Veiði Fjólmennt við Þingvallavatn í dag Veiði