Auðmaður í gæsluvarðhaldi vegna „morðsins“ Stefán Ó. Jónsson skrifar 1. júní 2018 06:54 Mál Arkady Babchenko hefur vakið mikla athygli, enda þykir mörgum sviðsetningin grafa undan trúverðugleika fjölmiðla. VÍSIR/AFP
Dómstóll í Úkraínu hefur samþykkt gæsluvarðhald yfir auðmanni sem talinn er hafa lagt á ráðin um að myrða rússneska blaðamanninn, sem talið var að hafi verið myrtur í vikunni. Borys Herman er sagður á vef breska ríkisútvarpsins hafa greitt leigumorðingja um 15 þúsund bandaríkjadali, um 1,5 milljón króna, fyrir að koma Arkady Babchenko fyrir kattarnef. Hann þvertekur fyrir ásakanirnar, segist ekki hafa viljað Babchenko feigan og hann hafi þvert á móti verið samvinnufús þegar úkraínska leyniþjónustan setti sig í samband við hann.Hér má sjá Babchenko liggja í svínsblóðinu.Leyniþjónustan setti morð Babchenko á svið á þriðjudag, með það fyrir augum að hafa uppi á mönnum sem taldir eru hafa lagt á ráðin um að myrða blaðamanninn. Málið vakti athygli, ekki síst vegna þess að Babchenko mætti á blaðamannafund daginn eftir „morðið,“ sprelllifandi. Þar tilkynnti hann gapandi blaðamönnum að svínsblóð og förðunarfræðingur höfðu séð til þess að hann virtist hafa verið skotinn til bana fyrir utan íbúð sína í Kænugarði. Babchenko segir að fyrrnefndur Borys Herman hafi innt greiðsluna af hendi eftir að fréttir af „morðinu“ fóru að berast. Jafnframt er því haldið fram að maðurinn sem Herman hafði fengið til verksins hafi verið á mála úkraínsku leyniþjónustunnar. Gæsluvarðhaldið yfir Borys Herman, sem starfar fyrir vopnaframleiðanda, er til tveggja mánaða.
Tengdar fréttir Horfði á fréttir af eigin „morði“ úr líkhúsi „Ég valdi að lifa af,“ segir Arkady Babchenko, sem tók þátt í að sviðsetja morð sitt í Úkraínu. 31. maí 2018 19:46 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Sjá meira
Horfði á fréttir af eigin „morði“ úr líkhúsi „Ég valdi að lifa af,“ segir Arkady Babchenko, sem tók þátt í að sviðsetja morð sitt í Úkraínu. 31. maí 2018 19:46