Viðleitni Trump til friðar hefur verið hyllt víða en bandarískir þingmenn vilja þó fá að vita hvað Trump og Kim ræddu um áður en þeir skrifuðu undir sameiginlega yfirlýsingu. Þar kom ekkert fram um áður yfirlýst markmið Bandaríkjanna um að vilja fullkomna og staðfesta afkjarnavopnun Norður-Kóreu. Í yfirlýsingunni kom nánast ekkert fram annað en að Norður-Kórea ætlaði sér að standa við afkjarnavopnun alls Kóreuskagans.
Það er loforð sem Norður-Kórea hefur oft gefið út áður, án þess að standa við það. Þar að auki sneri yfirlýsingin ekkert að mögulegum friðarsáttmála á milli Norður-Kóreu annars vegar, og Suður-Kóreu og Bandaríkjanna hins vegar, sem enn eiga tæknilega séð í stríði. Þá hefur Trump verið gagnrýndur af þingmönnum beggja flokka Bandaríkjanna fyrir að samþykkja að hætta heræfingum með Suður-Kóreu.
Trump hefur varið þá ákvörðun sína með því að segja Bandaríkin spara verulega fjármuni með því að hætta æfingunum.
Sjá einnig: Ummæli Trump um æfingar og brottflutning komu hernum og bandamönnum á óvart
Ríkismiðlar Norður-Kóreu fjalla um fund Kim og Trump sem upphafið á nýju sambandi ríkjanna og hafa myndir af þeim tveimur verið birtar víða. Því hefur einnig verið haldið fram að Trump hafi lofað Kim því að fella niður viðskiptaþvinganir og refsiaðgerðir í áföngum, samhliða áframhaldandi viðræðum ríkjanna. Það er þvert á fyrri yfirlýsingar Trump og ríkisstjórnar hans.
Samkvæmt AP fréttaveitunni hafa miðlar Norður-Kóreu einnig rætt um afkjarnavopnun Kóreuskagans og að hún muni eiga sér stað þegar ríkisstjórn landsins telji það við hæfi og samhliða því að Bandaríkin láti af ógnandi hegðun sinni í garð Norður-Kóreu.
Fyrir fundinn höfðu Bandaríkin gefið út að ekki yrði látið af þvingunum og refsiaðgerðum.

Bob Corker, formaður utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, hefur kallað eftir því að Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, mæti á fund nefndarinnar og segi þeim frá fundinum og hvað hafi verið rætt þar. Þar á meðal hvort Trump og Kim hafi rætt veru hermanna Bandaríkjanna í Suður-Kóreu.
„Enn sem komið er, tel ég okkur ekki vita nóg til að gagnrýna niðurstöðuna eða fagna henni,“ sagði Corker í samtali við Washington Post.
Frekari upplýsingar munu koma í ljós þegar Pompeo fundar næst með embættismönnum Norður-Kóreu. Hið hefðbundna skref er að Norður-Kórea staðfesti að þeir eigi kjarnorkuvopn og hve mörg, staðfesti hve mikið af auðguðu úrani þeir eiga og ýmislegt fleira. Afkjarnavopnun Norður-Kóreu gæti tekið mörg ár.
Just landed - a long trip, but everybody can now feel much safer than the day I took office. There is no longer a Nuclear Threat from North Korea. Meeting with Kim Jong Un was an interesting and very positive experience. North Korea has great potential for the future!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) June 13, 2018
Before taking office people were assuming that we were going to War with North Korea. President Obama said that North Korea was our biggest and most dangerous problem. No longer - sleep well tonight!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) June 13, 2018
We save a fortune by not doing war games, as long as we are negotiating in good faith - which both sides are!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) June 13, 2018