Reynt að smygla heróíni til landsins Kristín Ólafsdóttir skrifar 29. júní 2018 11:03 Hvor umræddra pilta á tvítugsaldri hafði rúmlega kíló af kókaíni í fórum sínum. Vísir/Vilhelm
Sex einstaklingar sæta nú gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglunnar á Suðurnesjum á jafn mörgum málum er varða innflutning á fíkniefnum. Í tilkynningu frá lögreglu segir að í tveimur aðskildum málum sé um að ræða tvo pilta rétt um tvítugsaldur og í þriðja málinu var gerð tilraun til að smygla heróíni til landsins. Þetta sé sérstakt áhyggjuefni. Hvor umræddra pilta á tvítugsaldri hafði rúmlega kíló af kókaíni í fórum sínum við komuna hingað til lands. Þá var einn karlmaður til viðbótar, sem kom til landsins frá Köln í Þýskalandi, með 105 pakkningar innvortis og innihéldu þær samtals rúmlega kíló af kókaíni. Fjórði maðurinn var með tæpan lítra af amfetamínbasa í flösku undan viskíi í farangrinum. Aðrir sem sæta rannsókn vegna fíkniefnamála voru með mun minna magn. Að því er segir í tilkynningu lögreglu er samtals um að ræða 3,7 kíló af kókaíni, lítilræði af heróíni og nær einn lítra af amfetamínbasa sem hægt hefði verið að framleiða um 3 kíló af amfetamíni úr. Tollgæsla stöðvaði mennina í Flugstöð Leifs Eiríkssonar við komuna til landsins.
Lögreglumál Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira