Lífið

Jenner harðlega gagnrýnd fyrir að láta gata eyru dóttur sinnar

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Kylie Jenner ásamt dóttur sinni, Stormi.
Kylie Jenner ásamt dóttur sinni, Stormi. Instagram/@Kyliejenner
Athafnakonan og snyrtivörumógúllinn Kylie Jenner hefur verið harðlega gagnrýnd á samfélagsmiðlum eftir að netverjar tóku eftir því að dóttir hennar er með göt í eyrunum.

Jenner birti myndband, sem sjá má hér að neðan, á Snapchat-reikningi sínum í síðustu viku. Í myndbandinu sést hún kúra með dóttur sinni, Stormi, sem hún eignaðist með rapparanum Travis Scott í febrúar síðastliðnum.



 
THIS IS SO CUTE 7/11/18

A post shared by Kylie Jenner (@kyliesnapchat) on Jul 11, 2018 at 5:45pm PDT

Glöggir fylgjendur Jenner tóku eftir því að eyru Stormi eru götuð og í kjölfarið létu háværar gagnrýnisraddir í sér heyra.

„Hvernig getur hún fengið það af sér að gera göt í barnið sitt! Hræðilegt, ég gæti aldrei valdið barni mínu ónauðsynlegri þjáningu!“ skrifaði til að mynda einn notandi á Instagram.

Aðrir hafa þó bent á að nokkuð algengt sé að gata eyrun á ungabörnum. Í mörgum menningarheimum séu götuð eyru auk þess rótgróin hefð.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.