Gantaðist með að hafa myrt eiginkonu sína Samúel Karl Ólason skrifar 17. júlí 2018 23:18 Steve Searle. Vísir/Facebook
Bretinn Stephen Searle var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa kyrkt eiginkonu sína, eftir að hann hélt fram hjá henni með kærustu sonar þeirra. Searle sagði að um sjálfsvörn hefði verið að ræða þar sem Anne Searle hefði ráðist á hann með hnífi. Kviðdómendur tóku þó ekki mark á þeirri vörn. Lögreglan hefur birt hljóðupptöku af símtali Searle til Neyðarlínunnar eftir að hann myrti Anne. Eftir að hann náði sambandi við Neyðarlínuna sagði hann: „Ég drap konuna mína.“ Þá bætti hann við að hann teldi þetta símtal vera óhefðbundið fyrir þann sem svaraði og eftir langa þögn sagði hann í léttum tón: „Gleðilegt nýtt ár“, en morðið átti sér stað þann 30. desember í fyrra. Searle sagðist hafa kyrkt eiginkonu sína og að aðstæður væru „undarlegar“. Þegar hann var spurður hvort þau væru bara tvö í húsinu svaraði hann á þá leið að hann væri í rauninni bara einn. Á upptökunni má einnig heyra þegar Searle fer til dyra og opnar fyrir lögregluþjónum. Hann heilsar þeim kurteislega og segir: „Ahh. Sælir vinir“. Samkvæmt frétt Telegraph sagði hann því næst: „Fyrirgefið. Ég hef verið óþekkur strákur“. Searle er 64 ára gamall fyrrverandi hermaður og fyrrverandi borgarfulltrúi UKIP í Suffolk. Hann hafði verið giftur Anne, sem var 62 ára, í 45 ár og áttu þau þrjá syni. Upp komst um kynferðislegt samband hans og tengdadóttur hans í júní í fyrra. Nokkrum dögum fyrir morðið skrifaði Anne jólakveðju á Facebook. „Gleðileg Jól. Vonandi vegnar ykkur vel og eigið góðan dag. Ég vona að ég verði hérna enn árið 2018. Við sjáum til.“ Meinarfræðingur sagði ljóst að Anne hefði dáið þar sem þrengt hefði verið að öndunarvegi hennar. Ljóst væri að hún hefði misst meðvitund eftir átta til fimmtán sekúndur og hálstakinu hefði verið haldið í einhverjar mínútur til þess að myrða hana. Searle er sagður hafa sýnt engin viðbrögð þegar dómurinn var kveðinn upp. Refsing hans verður ákveðin á miðvikudaginn.
Mest lesið Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Fleiri fréttir Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Sjá meira