Íslenski landsliðsmarkvörðurinn síðasta púslið í lið HSV Hamburg Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. júlí 2018 10:15 Aron Rafn Eðvarðsson í læknisskoðuninni hjá HSV Hamburg. Mynd/HSV Hamburg
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson mun spila með þýska b-deildarliðinu Handball Sport Verein Hamburg á komandi tímabili en HSV staðfestir þetta á heimasíðu sinni. Það hefur tekið smá tíma að ganga frá lausum endum en Aron Rafn hafði talað um það sjálfur að allt liti út fyrir að hann færi til þýska liðsins.Ein Kracher zum Trainingsauftakt! Der isländische Nationaltorwart Aron Rafn Eðvarðsson wechselt nach Hamburg. Wir freuen uns auf dich, Aron https://t.co/ZMhninDFuL — Handball Sport Verein Hamburg (@HamburgHandball) 12. Juli 2018 Aron Rafn fór loksins í læknisskoðun hjá félaginu og nú er allt klárt eftir að hann stóðst hana. Aron Rafn átti flott tímabil með ÍBV og hjálpaði liðinu að vinna þrefalt, það er að vera Íslands- bikar- og deildarmeistari. Liðið fór líka í undanúrslitin í Evrópukeppninni. Aron Rafn þekkir vel til í þýsku b-deildinni því hann spilaði á sínum tíma með liði SG BBM Bietigheim. „Aron var okkar fyrsti kostur og við erum mjög ánægðir með að hafa sannfært hann um að við og Hamburg væru rétti staðurinn fyrir hann. Hann hefur mikla reynslu og nú erum við tilbúnir í b-deildina,“ sagði Torsten Jansen, þjálfari HSV Hamburg við heimasíðu félagsins. HSV Hamburg liðið er á hraðferð upp deildirnar eftir að hafa orðið gjaldþrota árið 2016. Þá var liðið dæmt niður í þýsku C-deildina. HSV Hamburg komst upp úr c-deildina í vor og hefur nú sett stefnuna á það að spila aftur í þýsku bundesligunni á ný. Aron Rafn verður númer 28 í markinu hjá HSV Hamburg í vetur. Á heimasíðu HSV Hamburg segir að Aron hafi verið síðasta púslið og að nú sé leikmannahópurinn klár fyrir tímabilið 2018-19.
Handbolti Mest lesið „Ég trúði ekki að þetta væri að gerast“ Sport Hefur eignast barn en þarf samt að sanna að hún sé kona Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótbolti Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Körfubolti Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Enski boltinn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Enski boltinn Leik lokið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum Íslenski boltinn Fótboltamaður drukknaði Fótbolti Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Enski boltinn Í beinni: Fram - Stjarnan | Baráttan um fjórða sætið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Íslensku strákarnir byrjuðu HM á 22 marka sigri Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Erlangen staðfestir komu Andra Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna „Margt dýrmætt á þessum ferli“ Valskonur þurfa að vinna hollensku meistarana til að fá Íslendingaslag Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Sjá meira