Flóðin í Japan þau mannskæðustu í þrjátíu ár Kjartan Kjartansson skrifar 10. júlí 2018 11:00 Fólk virðir fyrir sér eyðilegginguna í bænum Mabi í Okayama-héraði. Vísir/EPA
Nú er 141 sagður hafa farist í flóðum og skriðum af völdum úrhellisrigninga í Japan. Mannskaðinn er sá versti í flóðum þar í að minnsta kosti þrjá áratugi. Björgunarlið leita enn að fólki í aur og húsarústum og tuga er enn saknað. Um tvær milljónir manna hafa verið látnar yfirgefa heimili sín á vestanverðri Honshu-eyju, stærstu og fjölmennustu eyju Japans, eftir að ár flæddu yfir farvegi sína, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Fólk hefur hafst við í skólum og íþróttahúsum sem yfirvöld hafa notað sem neyðarskýli. AP-fréttastofan segir að fleiri en fimmtíu hafi enn verið saknað þegar dagur var að kvöldi kominn í Japan í dag, flestir þeirra á Hiroshima-svæðinu þar sem ástandið hefur verið verst. Víða er rafmagnslaust og skortur er á drykkjarvatni og matvælum. Úrkoman sem valdið hefur hamförunum er söguleg. Frá því á fimmtudag hefur úrkoman mælst þrefalt meiri en venjulega mælist í öllum júlímánuði þar. Fleiri en sjötíu þúsund björgunarmanna vinna að aðgerðum á svæðinu, þar á meðal her- og slökkviliðsmenn. Spáð er skaplegra veðri næstu daga sem ætti að létta björgunarstörfin. Enn er þó sögð hætta á skriðum og flóðum á sumum svæðum.
Tengdar fréttir 38 látnir vegna úrhellisrigningar í Japan Talið er að að minnsta kosti 38 manns séu látnir vegna flóða og skriðufalla í vesturhluta Japan. 7. júlí 2018 11:03 Hundruð þúsunda flýja vegna sögulegrar rigningar í Japan Að minnsta kosti fjórir eru látnir af völdum veðursins og fjölda manna er saknað. 6. júlí 2018 11:41 Fleiri finnast látnir í Japan Að minnsta kosti hundrað eru látnir í gríðarmiklum flóðum í Japan sem hófust fyrir helgi. 9. júlí 2018 07:52 Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Fleiri fréttir Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Sjá meira
38 látnir vegna úrhellisrigningar í Japan Talið er að að minnsta kosti 38 manns séu látnir vegna flóða og skriðufalla í vesturhluta Japan. 7. júlí 2018 11:03
Hundruð þúsunda flýja vegna sögulegrar rigningar í Japan Að minnsta kosti fjórir eru látnir af völdum veðursins og fjölda manna er saknað. 6. júlí 2018 11:41
Fleiri finnast látnir í Japan Að minnsta kosti hundrað eru látnir í gríðarmiklum flóðum í Japan sem hófust fyrir helgi. 9. júlí 2018 07:52