Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Árni Sæberg skrifar 9. september 2026 12:12 Kareem Abufarhah gengur út úr dómsal 101. Vísir/Anton Brink Hvorki sakborningar né brotaþoli í Höfðatorgsmálinu svokallaða kannast við að þekkjast, þrátt fyrir að samskipti þeirra fyrir árásina hafi verið borin undir þá í gær. Þeir vísuðu allir á bug að árásin tengdist fíkniefnaviðskiptum.
Aðalmeðferð í máli Héraðssaksóknara á hendur þeim Kareem Abufarhah, Qossay Alsadi og Mohamed Ahmed hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og heldur áfram á morgun. Þeim er gefið að sök að hafa reynt að myrða mann með því að aka á hann á mikilli ferð, berja með kylfu og stinga í vinstri rasskinn, í bílakjallara undir Höfðatorgi í Reykjavík í mars síðastliðnum. Menntaskólanemar viðstaddir Aðalmeðferðin hófst á því að Abufarhah gaf skýrslu fyrir dómi. Það sem hæst bar þar var þegar sækjandi spilaði myndskeið, sem sýndi hvernig hvítum Land Rover Defender var ekið á mikilli ferð á brotaþola, sem skaust upp í loft og marga metra áfram. Dómsalur 101 var þéttsetinn og ekki var laust við að nokkur andköf heyrðust þegar bíllinn hæfði brotaþola. Meðal gesta í sal var talsverður fjöldi nemenda í lögfræðiáfanga í Verslunarskóla Íslands. Abufarhah neitar sök í málinu og sagði að hann hefði ekki verið undir stýri þegar bílnum var ekið á brotaþola, en gekkst við því að hafa ekið bílnum í og úr bílakjallaranum. Einn fór bílavillt og annar var mættur til að reykja kannabis Næst var komið að Alsadi, sem er sakaður um að hafa barið brotaþola ítrekað með kylfu. Hann gaf skýrslu í gegnum fjarfundarbúnað frá Jórdaníu og kvaðst hafa mætt í bílakjallarann fyrir rælni og ekki tekið þátt í átökum þar. Spurður að því hvernig stæði á því að hann hefði endað í hvíta Land Rovernum sagðist hann einfaldlega hafa farið bílavillt. Ahmed mætti síðastur sakborninga fyrir dóminn og bar um að hann hefði verið kominn í bílakjallarann til þess að reykja kannabis með vini sínum, eitthvað sem hann hefði gert daglega í um tvo mánuði. Skyndilega hefðu þrír menn mætt vopnaðir og mikil átök brotist út. Hann hefði reynt að stöðva átökin en ekki tekið þátt í þeim. Sækjandi spurði hann hvort gráklæddur maður á myndskeiði væri hann, sem hann sagði vera líklegt. Á myndskeiðinu sést gráklæddur maður virðast stinga brotaþola einu sinni en Ahmed sagði þá loks að hann hefði séð annan mann stinga brotaþola. Hann hefði ekki sagt frá því fyrr vegna ótta um líf sitt. Brotaþoli gekkst við því að sjá illa Loks kom brotaþoli fyrir dóm sem vitni. Hann sagðist hafa mætt í bílakjallarann til þess að ræða við Abufarhah um meintan þjófnað Abufarhah af kunningja hans. Hann hefði haft tvo félaga sína með í för fyrir tilviljun og hann hefði ekki séð að þeir væru vopnaðir. Á myndskeiði sem var borið undir brotaþola sést annar félagi hans greinilega með hafnaboltakylfu og hinn virðist halda á einhvers konar vopni. Einn verjanda spurði brotaþola þá hvort hann sæi illa, enda sæist á myndskeiðinu hvernig félagi hans hélt á kylfunni beint fyrir framan hann. Brotaþoli gekkst við því að sjá frekar illa. Þá sagðist hann ekkert hafa þekkt til hinna ákærðu þrátt fyrir að borin hefðu verið undir samskipti ákærðu við annan meðreiðarsveina hans, sem virtust snúast um einhvers konar fíkniefnaviðskipti. Brotaþoli tók alfarið fyrir að hafa staðið í slíkum viðskiptum, líkt og allir þrír ákærðu.
Alvarleg líkamsárás í bílakjallara Höfðatorgs Dómsmál Lögreglumál Tengdar fréttir Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Qossay Ali Yahya Alsadi, sem sætir ákæru fyrir tilraun til manndráps í félagi við tvo aðra í bílakjallara undir Höfðatorgi, segist engan hafa barið umrætt kvöld. Hann hafi komið í bílakjallarann fyrir tilviljun og óvart sest inn í bíl sem hafði skömmu áður verið ekið á brotaþola á mikilli ferð. 8. september 2026 12:39 Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira
Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Qossay Ali Yahya Alsadi, sem sætir ákæru fyrir tilraun til manndráps í félagi við tvo aðra í bílakjallara undir Höfðatorgi, segist engan hafa barið umrætt kvöld. Hann hafi komið í bílakjallarann fyrir tilviljun og óvart sest inn í bíl sem hafði skömmu áður verið ekið á brotaþola á mikilli ferð. 8. september 2026 12:39