Lífið

Justin Bieber í sjokki eftir fréttirnar um Demi Lovato: "Ég hélt að hún væri edrú“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bieber tók fréttunum illa.
Bieber tók fréttunum illa.
Kanadíska poppstjarnan fékk ákveðið sjokk þegar hann frétti um stöðuna á Demi Lovato sem var flutt á sjúkrahús í Los Angeles í vikunni en grunur er á því að hún hafi tekið of stóran skammt af heróíni.

Lovato komst til meðvitundar í gær og er líðan hennar sögð vera stöðug en poppstjarnan hefur átt í vandræðum með fíkn í mörg ár. Hún gaf á dögunum út lagið Sober sem fjallar um að hún hafi fallið fyrir stuttu en söngkonan hafði verið edrú í nokkur ár.

Útsendari slúðurmiðilsins TMZ  hitti Bieber í bílastæðahúsi í Bandaríkjunum í gær og spurði hann út í málið.

„Þetta er hræðilegt og hugur minn er hjá henni og fjölskyldunni. Ég hélt að hún væri edrú,“ segir Bieber en hér að neðan má sjá myndband af atvikinu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.