Verð hlutabréfa í tæknirisanum Facebook hafa hrunið um 20% síðustu klukkustundir. Ástæðan er að fyrirtækið hagnaðist minna og óx hægar unfanfarið ár en gert var ráð fyrir.
Fyrirtækið hefur átt undir högg að sækja vegna umræðu um dreifingu falsfrétta og kosningaáróðurs. Þurfti Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, þurfti fyrr á þessu ári að bera vitni fyrir framan bandaríska þingnefnd vegna þeirra mála.
Facebook hefur í dag 2,23 milljarða notenda um allan heim sem er 11% meira en á sama tíma í fyrra. Það er hins vegar hægasti vöxtur sem fyrirtækið hefur upplifað í meira en tvö ár.
Þá hafa tekjur aukist um meira en 40% frá því í fyrra en á sama tíma hafa útgjöld rokið upp um 50%.
Í tilkynningu frá Facebook segir að útgjöld muni halda áfram að hækka til skemmri tíma. Verið sé að fjárfesta milljörðum dollara í að bæta eftirlit með innihaldi, auglýsingabirtingu og meðferð persónuupplýsinga.
Það sé hins vegar ekki áhyggjuefni í ljósi þess að fyrirtækið sé enn í örum vexti. Í yfirlýsingu segir Zuckerberg að Facebook muni halda áfram að fjárfesta í leiðum til að tryggja betur öryggi notenda og gagna.
Þrátt fyrir þessar sviptingar á hlutabréfamörkuðum í dag líta langtímaspár enn vel út fyrir Facebook.
