Messan um Sanchez: Var hæfileikum hans stolið eins og í Space Jam? Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 14. ágúst 2018 15:00 Sanchez var lengi einn besti maður Arsenal en hefur ekki fundið sig í Manchester-borg Vísir/Getty
Manchester United byrjaði tímabilið í ensku úrvalsdeildinni á 2-1 sigri á Leicester í opnunarleiknum á Old Trafford. Einn maður stóð upp úr í leik United, og ekki á góðan hátt. Alexis Sanchez kom til Manchester United í janúar og hann náði ekki að komast á skrið með nýju liði á seinni hluta síðasta tímabils. Hann virðist ætla að byrja nýtt tímabil eins og hann kláraði það síðasta. Sérfræðingarnir í Messunni á Stöð 2 Sport ræddu frammistöðu Sanchez og sagði Ríkharð Óskar Guðnason að Sanchez hefði lent í „Space jam“ og vísaði þar til samnefndrar kvikmyndar þar sem körfuboltaskrímsli stelur hæfileikunum af Michael Jordan og fleiri stjörnum og þeir verða lélegir. „Ég horfði á þennan leik á föstudaginn og ég hélt á tímabili að hann væri bara að grínast,“ sagði Ríkharð. „Hann kom ekki vel inn í liðið þegar hann var keyptur í fyrra, átti erfitt með að ná takti, og hann virðist einhvern veginn ekki passa inn í það sem Manchester United er að gera,“ sagði Gunnleifur Gunnleifsson. Jóhannes Karl Guðjónsson tók undir gagnrýnina. „Það sem mér finnst ennþá sorglegra er að þessi sprengikraftur sem hann hafði til þess að taka hlaup og fara aftur fyrir, það er eitthvað ekki alveg eins og það á að vera.“ Gunnleifur benti þó á að Jose Mourinho sé að spila sama upplag og hann gerði á síðasta tímabili þegar stuðningsmenn hrifust ekki af spilamennskunni en liðið náði þó í stig. Ef Mourinho er ekki að biðja um neitt meira frá Sanchez, afhverju ætti hann þá að spila öðruvísi en hann gerði á síðasta tímabili? „Er það samt ekki á Mourinho að ná því besta út úr honum? Hann hefur hæfileika en það er eitthvað í gangi hjá honum,“ svaraði Jóhannes Karl. Umræðuna úr þættinum má sjá hér að neðan.
Enski boltinn Mest lesið Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Handbolti Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Handbolti Skýrsla Vals: Vel nýttur veikindadagur Handbolti „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti Dagur vann líka og nú eru fjögur lið með fjögur stig í íslenska riðlinum Handbolti „Takk fyrir okkur en við þurfum fleiri stig“ Handbolti „Íslenska geðveikin sem við tölum oft um, þetta var hún“ Handbolti „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Handbolti EM í dag: Flensuleikur Vals og stemningslausir Svíar Handbolti Fleiri fréttir Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Sjá meira