Liverpool framherjarnir eru ennþá þeir yngstu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. ágúst 2018 13:00 Michael Owen og Robbie Fowler fagna hér Evróputitli með þeim Jamie Carragher og Steven Gerrard. Vísir/Getty
Raheem Sterling skoraði á dögunum sitt fimmtugasta mark í ensku úrvalsdeildinni og aðeins tíu leikmenn í sögu deildarinnar hafa verið yngri á slíkum tímamótum. Þegar Raheem Sterling skoraði sitt fimmtugasta mark á móti Arsenal þá var hann aðeins 23 ára og 247 daga. Það er athyglisvert að skoða allan listann og sjá þá tíu leikmenn sem voru yngri en Raheem Sterling. Raheem Sterling skoraði 18 af 50 mörkum sínum í ensku úrvalsdeildinni á fyrstu fjórum tímabilum sínum með Liverpool. Það eru einmitt tveir Liverpool strákar sem eru þeir einu sem hafa náð að skora 50 mörk í ensku úrvalsdeildinni áður en þeir héldu upp á 21 árs afmælisdaginn.Youngest players to reach 50 Premier League goals: 20y, 251d: Owen 20y, 255d: Fowler 21y, 54d: Rooney 22y, 192d: Lukaku 22y, 340d: Ronaldo 23y, 34d: Kane 23y, 101d: Heskey 23y, 140d: A. Cole 23y, 188d: Sutton 23y, 228d: Robbie Keane 23y, 247d: Sterling In good company. pic.twitter.com/8Qfr9E6zqQ — Squawka Football (@Squawka) August 29, 2018Michael Owen var aðeins 20 ára og 251 dags gamall þegar hann bætti nokkra ára met Robbie Fowler. Fowler var fjórum dögum eldri. Owen skoraði sitt fimmtugasta mark í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2000 til 2001 en hann lék sinn fyrsta leik í deildinni 1997. Robbie Fowler hafði skorað sitt fimmtugasta deildarmark tímabilið 1995-96 en það var hans annað 25 marka tímabil með Liverpool. Eftir þrjú tímabil var hinn 21 árs gamli Fowler búinn að skora 65 mörk í 108 leikjum í ensku úrvalsdeildinni. Robbie Fowler skoraði alls 163 mörk í ensku úrvalsdeildinni og er sjötti markahæstur frá upphafi. 120 af þeim komu fyrir Livepool. Michael Owen er í áttunda sætinu með 150 mörk en hann skoraði 118 þeirra fyrir Liverpool áður en hann fór til Real Madrid. Það er annars nóg af hetjum á þessum lista, Wayne Rooney er þriðji, Cristiano Ronaldo er í fimmta sæti og Harry Kane er einu sæti á eftir.
Enski boltinn Mest lesið „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti Sú besta í heimi er ólétt Sport Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti Danskur landsliðsmaður greindist með krabbamein Körfubolti Sló eitt elsta heimsmetið í frjálsum íþróttum Sport „Hann er örugglega góður pabbi“ Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Sjá meira