Fótbolti

Erum búin að bíða spennt eftir þessum leikjum

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Freyr Alexandersson verður án Dagnýjar Brynjarsdóttur.
Freyr Alexandersson verður án Dagnýjar Brynjarsdóttur. fréttablaðið/sigtryggur
Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, tilkynnti í gær hvaða 23 leikmenn hann hefði valið í næsta verkefni kvennalandsliðsins.

Fram undan eru tveir risaleikir á heimavelli gegn Þýskalandi og Tékklandi þar sem Ísland getur komist í fyrsta sinn í lokakeppni HM í kvennaflokki. Hefst það með leik gegn Þýskalandi þar sem sigur tryggir endanlega sæti á HM en með jafntefli er Ísland með örlögin í eigin höndum fyrir lokaleik riðilsins.

Það efast enginn um að Þýskaland er með eitt af bestu landsliðum heims í kvennaflokki. Áttfaldur Evrópumeistari, tvöfaldur heimsmeistari og vann til gullverðlauna á Ólympíuleikunum 2016 en Ísland sótti þrjú stig þegar liðin mættust ytra fyrir tæpu ári.

 

Íslenska landsliðið verður án tveggja lykilleikmanna í leikjunum tveimur og mun eflaust sakna Hörpu Þorsteinsdóttur og Dagnýjar Brynjarsdóttur í leikjunum.

„Þetta eru leikir sem við erum búin að bíða eftir í langan tíma, við vorum alltaf með það markmið að þetta yrðu úrslitaleikir. Þýska landsliðið er með frábæra sögu og frábæra leikmenn úr bestu deild heims en við sýndum að við getum unnið þær. Það gefur okkur sjálfstraust og við trúum því að við getum unnið með okkar besta leik,“ sagði Freyr sem var vongóður um að byggja mætti á þeirri frammistöðu.

„Við munum nálgast hann aðeins öðruvísi en með sömu grunnáherslur. Það er meira sjálfstraust í þýska hópnum í dag sem við þurfum að finna lausn á.“ Hann sagði það áfall að missa Hörpu svona stuttu fyrir leik en var undir það búinn.

„Við vorum búin að horfa á það að hún heldur bolta ofboðslega vel og það er mikill missir að því,“ sagði Freyr og hélt áfram:

„Ég er búinn að fara í gegnum það mörg meiðsli með kvennalandsliðið að ég leyfi mér ekki að hugsa neikvætt. Ég var búinn að undirbúa plan b og tók lokasímtal við Hörpu í gær þar sem ákvörðunin var tekin. Þegar hún dettur út þarf aðeins að endurskoða leikskipulagið okkar.“

Það verður missir að Hörpu og Dagnýju í föstum leikatriðum. „Dagný er sennilega ein af fimm bestu í heiminum þegar kemur að skallaeinvígjum. Klárlega hefði verið betra að hafa hana til taks en hún fann það sjálf að þetta myndi ekki ganga og lét mig vita. Ég var undir það búinn.“


Tengdar fréttir

Svona var fundur Freys í Laugardalnum

Íslenska kvennalandsliðið á fram undan gríðarlega mikilvæga leiki gegn Þjóðverjum og Tékkum í undankeppni HM í Frakklandi næsta sumar. Vísir var með beina útsendingu og textalýsingu frá blaðamannafundi KSÍ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×