Íslenski boltinn

Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tryggvi Hrafn Haraldsson er búinn að gefa sextán stoðsendingar í Bestu deild karla í sumar.
Tryggvi Hrafn Haraldsson er búinn að gefa sextán stoðsendingar í Bestu deild karla í sumar. Vísir/Anton

Tryggvi Hrafn Haraldsson setti nýtt stoðsendingamet í sigri Valsmanna í Bestu deildinni um helgina. Hann sló met sem var meðal annars í eigu föður hans í tvo áratugi.

Tryggvi Hrafn var þegar búinn að jafna metið fyrir leikinn en bauð upp á stoðsendingaþrennu í 4-1 sigri Vals á KA.

Tvær af stoðsendingunum átti hann á Dag Orra Garðarsson. Dagur er búinn að skora átta mörk í sumar, þar af fimm eftir stoðsendingar frá Tryggva Hrafni.

Hann er því búinn að bæta stoðsendingametið um þrjár stoðsendingar og er kominn með sextán stoðsendingar í Bestu deildinni í sumar.

Metið var áður í eigu fimm leikmanna. Tryggvi Guðmundsson setti það fyrstur sumarið 2008 eða sama sumar og leikjum var fjölgað úr átján leikjum í 22 leiki. Atli Guðnason jafnaði það fjórum árum síðar og þeir Adam Ægir Pálsson (2022), Hallgrímur Mar Steingrímsson (2023) og Kjartan Kári Halldórsson (2025) hafa allir jafnað það síðan leikjum var fjölgað úr 22 í 27.

Stoðsendingar hafa verið teknar saman í efstu deild síðan sumarið 1992 og fyrstu sex tímabilin varð Haraldur Ingólfsson, faðir Tryggva, stoðsendingakóngur deildarinnar.

Haraldur setti fyrsta metið sumarið 1992 þegar hann gaf níu stoðsendingar og bætti það með því að gefa ellefu stoðsendingar sumarið 1995. Hann gaf aftur ellefu stoðsendingar árið eftir.

Haraldur átti síðan metið allt til ársins 2008 þegar Tryggvi Guðmundsson sló það en tveir leikmenn, Guðmundur Benediktsson (1999) og Matthías Vilhjálmsson (2009), höfðu náð að jafna það árin á undan.

  • Saga stoðsendingametsins:
  • 9
  • Haraldur Ingólfsson, ÍA 1992
  • Haraldur Ingólfsson, ÍA 1993 [Jöfnun]
  • 11
  • Haraldur Ingólfsson, ÍA 1995
  • Haraldur Ingólfsson, ÍA 1996 [Jöfnun]
  • Guðmundur Benediktsson, KR 1999> [Jöfnun]
  • Matthías Vilhjálmsson, FH 2009 [Jöfnun]
  • 13
  • Tryggvi Guðmundsson, FH 2008
  • Atli Guðnason, FH 2012 [Jöfnun]
  • Adam Ægir Pálsson, Keflavík 2022 [Jöfnun]
  • Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 2023 [Jöfnun]
  • Kjartan Kári Halldórsson, FH 2025 [Jöfnun]
  • 16
  • Tryggvi Hrafn Haraldsson, Val 2026



Fleiri fréttir

Sjá meira


×