Danskur landsliðsmaður reitir Tony Pulis til reiði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. ágúst 2018 12:30 Martin Braithwaite vill komast til Spánar. Hér er hann með danska landsliðinu á HM í Rússlandi í sumar. Vísir/Getty
Tony Pulis er líklegur til að koma Middlesbrough aftur upp í ensku úrvalsdeildina en þessum fyrrum sjóri Stoke City er ekkert sérstaklega sáttur með einn sinn besta leikmann í dag. Danski landliðsframherjinn Martin Braithwaite hefur nefnilega beðið um það að fá að yfirgefa Middlesbrough en félagskiptaglugginn í Evrópu lokar á morgun. Hinn 27 ára gamli Braithwaite, sem var með danska landsliðinu á HM í Rússlandi í sumar, vill komast til liðs á Spáni. „Ég verð mjögm mjög vonsvikinn þegar menn koma hingað, eyða hér stuttum tíma og eru síðan að leita eftir að komast strax í burtu,“ sagði Tony Pulis við BBC Radio Tees.Tony Pulis is not very happy! Martin Braithwaite wants to quit Middlesbrough for Spain... with a day left of the transfer window. Full story: https://t.co/VtNuosr6GIpic.twitter.com/09NWOi59r4 — BBC Sport (@BBCSport) August 30, 2018Það fylgir ekki sögunni hvaða spænska félag hefur áhuga að þessum danska landsliðsframherja. Martin Braithwaite kom til Middlesbrough frá franska liðinu Toulouse í júlí í fyrra og gerði þá fjögurra ára samning. Braithwaite hefur byrjað tímabilið mjög vel og er með þrjú mörk í fyrstu fimm deildarleikjum tímabilsins. Hann skorðai 6 mörk í 21 leik í fyrra áður en hann var lánaður til franska liðsins Bordeaux í janúar. Tony Pulis var þekktur hér á landi fyrir að setja íslenska fótboltamenn út í kuldann og nú verður fróðlegt að sjá hvað hann gerir með Martin Braithwaite. „Hann hefur verið einn af okkar bestu leikmönnum á tímabilinu en er að hugsa um að komast eitthvað annað. Martin er ekki slæmur strákur og hefur lagt mikið á sig. Ég vil samt hafa hjá mér leikmenn sem vilja spila fyrir félagið,“ sagði Pulis.
Enski boltinn Mest lesið „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti Sú besta í heimi er ólétt Sport Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Danskur landsliðsmaður greindist með krabbamein Körfubolti „Hann er örugglega góður pabbi“ Handbolti Sló eitt elsta heimsmetið í frjálsum íþróttum Sport Fleiri fréttir Í beinni: Crystal Palace - Chelsea | Mæta með allt í upplausn í Lundúnaslag Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu Sjá meira