Eyjólfur: Langbesti sóknarleikur sem við höfum spilað Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 6. september 2018 19:45 Eyjólfur hefur þjálfað U21 landsliðið síðustu ár mynd/ksí/hilmar þór
Íslenska U21 landsliðið í fótbolta vann 5-2 sigur á Eistum í undankeppni EM U21 á Kópavogsvelli í kvöld. Eyjólfur Sverrisson, þjálfari liðsins, var ánægður með sóknarleik sinna manna í kvöld. „Þetta var bara frábær fótbolti sem við vorum að spila og sóknarleikurinn var geggjaður í þessum leik,“ sagði Eyjólfur eftir leikinn. „Þetta var bara eins og á æfingasvæðinu í uppspilinu hjá okkur og var virkilega flott.“ Eistar eru á botni riðilsins og Ísland var í fjórða sæti fyrir leikinn, fjórum stigum á eftir Slóvökum í öðru sætinu. Fjögur bestu liðin í 2. sæti fara áfram í umspil um sæti á EM. Eyjólfur vildi þó ekki segja að þessi leikur hafi verið skyldusigur fyrir Ísland. „Þeir komust í 2-0 á móti okkur úti og við rétt náðum að snúa því í 2-3. Þeir eru með fínt lið og maður má ekki vanmeta þá.“ „Þetta var algjörlega langbesti sóknarleikur sem við höfum spilað hingað til, en það var aðeins of þægilegt fyrir strákana og þeir voru kærulausir í varnarleiknum. En þá erum við líka með eitthvað til þess að bæta.“ „Það var bara einbeitingarleysi, þetta gekk svo vel,“ sagði Eyjólfur spurður hvað hafi farið úrskeiðis í þessum tveimur mörkum sem Ísland fékk á sig. „Sinna ekki varnarskyldunni sem átti að gera og við þurfum að leiðrétta það.“ Það er þó margt gott hægt að taka úr þessum leik í næsta leik Íslands á þriðjudaginn. „Nei, það verða bara skammir eftir þennan leik, engin spurning,“ svaraði Eyjólfur léttur. „Stórkostlegur sóknarleikurinn, hlaupin góð og tímasetningarnar frábærar. Þetta var bara skemmtun fyrir áhorfendurnar,“ sagði Eyjólfur Sverrisson. Ísland mætir Slóvakíu á Alvogenvellinum í Vesturbænum á þriðjudag. Eftir sigur Íslands í dag munar aðeins einu stigi á liðunum í öðru og þriðja sæti riðilsins.
Fótbolti Mest lesið „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Handbolti Sló eitt elsta heimsmetið í frjálsum íþróttum Sport EM í dag: Helgarpabbar og dvalarheimili Handbolti Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Íslenski boltinn Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Enski boltinn Sævar um Keflavík: Eins og allir vilji ekki fá brunasár eða marbletti Körfubolti Haukur heill heilsu: „Þetta var svakalegt högg“ Handbolti Fleiri fréttir Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sandra fiskaði víti og fagnaði sigri í Íslendingaslag Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Inter skoraði sex mörk og náði sex stiga forskoti á toppnum Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Sú launahæsta fær 250 milljónir á ári Seldur ódýrt eftir rifrildi við van Persie Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Unnu leikinn án þess að skjóta á markið Bretar ósáttir með „ódýran brandara“ Infantino Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Sjá meira